www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Að reikna
Mánudagur, 05. september 2005

When the world's gone crazy and it makes no sense
And there's only one voice that comes to your defense.
And the jury's out and your eyes search the room
One friendly face is all you need to see

Í þessari jöfnu er x factor sem hagar sér þannig að hann virðist beat all odds. Gerir alla útreikninga miklu flóknari og stærðfræði er ekki mín sterkasta hlið, eins og frægt er orðið.

You ask yourself; who'd watch for me?

Kalt mat: ekki spurning. Annarskonar mat: mistök.

Reykingafólk og zippo kveikjarar. Mér finnst gott að handfjatla zippo kveikjara þegar ég er að "hugsa málið", tek fram að það var ekki ég sem kveikti í Melabúðinni, trúi ekki öðru en þar hafi verið á ferðinni einhver eða einhverjir sem líður mjög illa og halda að þeim líði eitthvað betur með því að skemma fyrir öðrum.

Hverjum líður vel þegar hann er búin að skemma fyrir öðrum? Það er sorglegt þegar eina gleðin sem fólk telur sig finna stafar af vitneskjunni um að þeim tókst að skemma eitthvað. Þú byggir ekki mikið á þeim grunni.

My only friend, who could it be?

Ég er helvíti góð með zippo, ennþá. Gamlir taktar. Úreldir taktar. Komnir langt fram yfir síðasta söludag.

Kannski er það vonin um að einhverjum öðrum líði jafn illa og þeim sjálfum sem þeir næra með þessu. Það endist ekkert, svo þeir þurfa að skemma fleira.

A solitary voice to speak out and set me free

Kannski er það málið (sjá næsta blogg). Kannski líður þeim svo illa, að þeir hafa ákveðið að skemma fyrir öllum í heiminum, smám saman, til að ná sér niðri á þessum hamingjusömu fávitum sem líður vel.

Fer eftir því hvernig þú lítur á málið. Ég heyrði svolítið í dag sem mér fannst merkilegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta kemur af vörum tólf ára barns: "Það er gott að við deyjum, annars væri lífið eins og fangelsi."

Think about it.

Opna/loka *kliks*

I hate to say it,

opna/loka *kliks*

I hate to say it..

opna/loka *kliks*

..but it's probably me


| anna | 23:30 |
comments

Meistari Sting er náttúrulega bara,,, meistari

Nr. 1 | posted by: Elma | 6.09.2005 | 10:30:03 | [+] |

meistari? Hardly

Nr. 2 | posted by: AtviksordaAnna | 6.09.2005 | 21:30:28 | [+] |

A long time ago. Þegar Óðal var Kreml. Brynja ekki byrjuð með Bubba. Þá átti ég Zippo. Ég reykti ekki þá frekar en nú en það þótti betra að eiga Zippo. Ef maður yrði beðinn um eld. Sjáðu. Eiginlega pick-up lína þess tíma.

Ég veit ekki hvort það var Zippoinn en þetta var eitt flóknasta tímabilið í mínu lífi. Það voru þó nokkuð margar breytur í þeirri jöfnu og útkoman heldur óviss á tímabili.

Ég kveikti ekki heldur í Melabúðinni enda búinn að týna Zippo.

Nr. 3 | posted by: igor | 7.09.2005 | 3:36:22 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web