www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á heilanum
Fimmtudagur, 01. september 2005

Þegar ég kom heim í hádeginu datt mér í hug:

Það búa litlir dvergar í björtum dal
á bak við fjöllin háu í skógarsal
Byggðu hlýja bæinn sinn
brosir þangað sólin inn
Fellin enduróma allt þeirra tal

Ég er búin að fá þetta lag á heilann, því miður. Kunni svo miklu betur við "Baby, now that I found you" með The Foundations. Þurfti bara að spila það einu sinni til að Doddi fengi það á heilann. Ég var að spila þetta á meðan ég var að elda í gær og hann tuðaði "æji mamma, þetta er svo leiðinlegt lag", korteri síðar heyrði ég innan úr barnaherbergi, lítinn strák syngja "now that i found you, i can't let you go - MAMMAAAAA! HEYRIRÐU HVAÐ ÞÚ HEFUR GERT? ÉG ER KOMIN MEÐ ÞETTA LAG Á HEILANN!" Hann var nú búinn að fyrirgefa mér áður en hann fór að sofa. Bygons.

Það eru menn utaná húsinu mínu.

Ég hef sterkan grun um að þessir menn hafi átt heima í fyrrnefndum dal á bak við fjöllin háu, í skógarsal -ekki á Íslandi, augljóslega - enda tala þeir enga íslensku. Þetta veit ég því blokkin á móti endurómar allt þeirra tal, samt bý ég ekki í fellunum.

Ég hef komist að því að ég fíla ekki að borða hádegismat með ókunnugan karlmann fyrir utan eldhúsgluggann. Ég fíla ekki að lesa blöðin með ókunnugan karlmann fyrir utan eldhúsgluggann. Ég fíla ekki að spila tónlist og dansa um á nærbuxunum með ókunnugan karlmann útá svölum, það er skárra ef hann er fyrir utan eldhúsgluggann.

Það virðist hinsvegar ekkert pirra mig þótt fólkið í blokkinni á móti geti fylgst með öllu sem ég geri, ef það kærir sig um, í gegnum kíki. Það er öðruvísi. Þá er það skrítnara en ég, þótt ég sé að dansa um á nærbuxunum. Meina.. að fylgjast með nágrönnunum útum glugga? Með kíki! How sick is that?

Það er ástæða fyrir því að ég bý uppá sjöttu hæð. Ég hlakka til þegar þessi viðgerð er búin.


| anna | 13:41 |
comments

Kannski finnst mér ekki eins merkilegt að Ísland skuli vera sjálfstæð þjóð. Kannski er Ísland ekki sjálfstæð þjóð.

Fokk.

Nú þarf ég að hringja í einhvern..

Nr. 1 | posted by: anna | 2.09.2005 | 20:12:10 | [+] |

Já, kannski eru fellinendur páfagaukar. Hvað veit maður.

Kannski ætti ég að leggja mig.

Nr. 2 | posted by: anna | 2.09.2005 | 20:32:25 | [+] |

Þetta með að kvak bergmáli ekki er reyndar þjóðsaga. nerd

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 3.09.2005 | 13:27:17 | [+] |

viltu kaupa páskasól?
viltu kaupa páskasól?

það kostar ekki neitt að kaupana!
viltu kaupa páska - sól?

míns hefur keypt síns ómældar vinsældir fyrir að láta samstarfsfólkið í vinnunni fá þetta á heilann

samt skárra en skín í rauða skotthúfu
enda kann enginn textann að því alminlega

Nr. 4 | posted by: siggimus | 5.09.2005 | 21:31:38 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web