www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Uppbyggjarinn
Sunnudagur, 14. ágúst 2005

Það er engin smá munur að vera komin á nýja vél, ég er í skýjunum með þetta. Búin að vera að setja vélarnar upp um helgina, það tekur tíma. Setja upp öll "nauðsynlegustu" forritin. Maður gerir sér enga grein fyrir því hvað þetta eru mörg forrit sem maður er að nota, fyrr en maður þarf að setja vélina upp frá grunni.

Þetta er ekki það skemmtilegasta sem ég geri, viðurkenni það.

Ég fór í kjólnum í gær og er að uppgötva nýja hlið á mér. Mér finnst pínu gaman að vera í svona skvísukjól. Hann er alveg eins og eftir formúlu frá Júlíu: ekki of þröngur, ekki of stuttur (rétt fyrir neðan hné) en soldið flegin, samt ekki þannig að maður eigi á hættu að brjóstin detti uppúr. Mér finnst svoleiðis verulega hallærislegt. Þetta er actually killer kjóll og ég er rosalega fín þegar ég er komin í hann. Var spurð hvort ég hefði verið í brúðkaupi. Mig langaði að svara "já, mínu eigin - piss off", en mundi svo að ég hafði einsett mér að vera dama í gærkvöldi svo ég brosti mínu blíðasta og sagði nei. En maðurinn hélt áfram.. "en þú ert svo rosalega fínt klædd"..

Who am I kidding, hugsaði ég, ég verð aldrei dama og svaraði: "æ give me a break, ég fór á útsölu og keypti mér kjól, ok? Þetta gerist." Hann minntist ekki orði á þetta aftur.

Ágætt að vita að nú á ég eitthvað sem gengur í brúðkaup.

Vinkona mín lá í krampa þegar ég skakklappaðist um stofuna á pinnahælaskónum þegar hún kom fyrst í gær, en ég var nú bara að djóka. Þetta eru skónir sem ég er búin að vera að ganga til undanfarið þegar ég horfi á sjónvarpið. Að fara á djammið í svona skóm ótilgengnum.. er ekki gaman.

Mig dreymdi óhugnarlegan draum í nótt. Það var ekki beint það sem ég sá í draumnum, meira hvernig það lét mér líða. Þegar ég vaknaði lá ég í smá stund uppí rúmi og hlustaði á rigninguna, svo hringdi ég í Dórið og sagði honum frá draumnum mínum. Hann fór mörgum orðum um hvað ég væri geðveik og ég fór að hlæja. Þá setti hann símsvararöddina á og sagði: "þú hefur náð samband við uppbyggjarann, ýttu á einn og segðu uppbyggjaranum hvernig þér líður, ýttu þá á ferninginn og hann byggir þig upp. Byrjaðu núna..."

Þegar ég hugsa út í það.. þá gerir hann þetta alltaf. Byrjar á að fá mig til að hlæja þegar hann veit að mér líður ekkert of vel, og svo segir hann aðra hluti sem eru of.. prívat til að eiga heima hér. En hann vissi að ég þurfti á því að halda. Þannig eru vinir.


| anna | 12:34 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web