www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sumt fólk
Fimmtudagur, 25. ágúst 2005

Djöfull er mann andskotinn sem býr á fyrstu hæð óhugnarlega leiðinlegur. Síðan hvenær er það illa séð að henda hlutum niður af svölum? Ég er búin að gera þetta í mörg ár og hef með þessu séð börnunum í hverfinu fyrir tombóludóti. Veit líka ekki betur en að einn af gömlu eldhússtólunum mínum sé inní eldhúsi hjá fyrrnefndum manni ásamt pönnu, baðvog, plastdiskum (sem mér fannst ljótir), sófapúðum, sóda strím tæki, innskotsborði (rispað), skammel og öðru smálegu.

"minn hluti garðsins, minn hluti garðsins", öskraði hann á mig. Minn hluti garðsins my ass. Ég spurði nú bara hvar landamærin væri að finna og hvort hann yrði þá ekki að girða af sinn hluta garðsins! Ef hann getur það fyrir allskonar helvítis drasli sem liggur þarna eins og hráviði útum allt. Sóði.

Ekki bað ég hann að geyma grillið sitt akkúrat á staðnum sem ég nota til að henda dóti sem ég þarf ekki eða vil ekki nota lengur. Hvernig átti ég að vita að ónýta sjónvarpið mitt myndi kremja grillið? Ég get ekkert verið að athuga hvað er þarna niðri, eins þjáð af lofthræðslu og ég er.

Svo flippaði hann ekki þetta litla út þegar ég, í sakleysi mínu, spurði hvort hann hefði nokkuð við sjónvarp að gera og hvort ég mætti ekki fá hans lánað. Ég veit ósköp vel að hann gerir aldei neitt annað en að hanga á netinu og perrast við miðaldra, einmana konur. Hann sagði mér það einu sinni þegar ég datt um hann á ganginum þegar ég var að koma af djamminu.

Ég ætla sko ekki að láta hann fá lykilinn að geymslunni fyrr en ég er búin að taka dótið sem ég á þar. Fæ tvo vini mína til að bera það upp fyrir mig í kvöld svo ég geti hent því fram af svölunum!

--

Meanwhile on planet earth: Tótalí! Þúsund þakkir frá mér, Dodda og Jóhönnu! Þetta er æðislegt sjónvarp!


| anna | 22:02 |
comments

Mikið er ég fegin að það gafst ekki upp á leiðinni heim til þín!

Mín var ánægjan happy

Nr. 1 | posted by: tótalí | 26.08.2005 | 9:44:22 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web