Fimmtudagur, 18. ágúst 2005
Ég er ekkert smá frústreruð núna. Í morgun fattaði ég að allt mitt líf er tómt rugl og ég ákvað að breyta um stefnu og gerast stuttmyndagerðamaður. Þá vantaði mig bara eitthvað viðfangsefni til að gera stuttmynd um.
Ég sagði strax upp í vinnunni en þarf reyndar að vinna uppsagnarfrestinn svo ég hætti ekki alveg strax. Gerði líka þennan fína starfslokasamning upp á 170 millur, sem er akkúrat upphæðin sem mig hefur vantað undanfarið. Skemmtilegt. Borgaði sig að fara á þarna.. "konur og samningatækni" námskeiðið.. verð að segja það.
Ég kom heim og sá að óboðnir gestir voru í íbúðinni. Ekki einn.. heldur tveir geitungar. Eins og venjulega fór ég og opnaði svalirnar og tilkynnti þeim ákveðinni röddu að nú skyldu þeir hypja sig út annars myndi ég drepa þá. Ég var ekki að grínast.
Annar þeirra var fljótur að forða sér en hinn hélt áfram að gæða sér á epplahýði á eldhúsborðinu. Fáviti. Ég fór í allt muglight skápinn og leitaði að WD40 brúsanum mínum, sem ég fann ekki. Ég panikkaði.. þangað til ég mundi eftir litla WD40 brúsanum sem ég geymi í töskunni minni til að spreyja í augun á ágengum karlmönnum. Þetta er jú fjölnota ryðolía.
Nema hvað.. ég hljóp niður í bíl, náði í töskuna og hljóp upp aftur, því nú var ég orðin blóðþyrst. Helvítis geitungs druslan var ennþá á eplahýðinu. Þá fékk ég hugmyndina.
Ég ákvað að búa til geitunga-splatter-mynd! Náði í myndavélina, stillti á hreyfimynd og byrjaði að taka upp. Ég var móð eftir öll hlaupin upp og niður stigana til að ná í morðvopnið og með WD40 í hægri og myndavélina í vinstri nálgaðist ég fórnarlamb mitt sem virtist ekki gera sér eina einustu grein fyrir því að það væri um það bil að leika í mynd þar sem viðurstyggðin sjálf er aðalleikarinn og mun á einhverjum tímapunkti tapa lífinu.
Ég hélt smá kynningarræðu, aðstæður og svona og svo byrjaði ég að spreyja.. horfði á helvítis kvikindið dilla bossanum og engjast um, ég hló fólskulega.
Því miður ýtti ég ekki nógu fast á rec, grínlaust Annars hefði ég actually tekið upp myndina og myndbandið væri á vefnum: ég - komin á hit lista geitungavinafélagsins.
Ég gæti grátið.
Nú er ég hinsvegar rokin út á bensínstöð til að byrgja mig upp af WD40.