Miðvikudagur, 24. ágúst 2005
Skarphéðnarnir á verkstæði ónefndrar búðar fá stóra feita rós í hnappagatið fyrir þetta.
Vill þannig til að á miðvikudeginum í síðustu viku fór ég til þeirra með ákveðna græju sem er oftar en ekki kölluð "flakkari" á íslensku en flakkarinn gaf frá sér torkennilegt hljóð. Þótti mörgum fagmönnum augljóst að harði diskurinn væri ónýtur og þar sem græjan er innan við mánaðar gömul töldu menn að starfsfólki búðarinnar bæri að láta mig fá nýjann disk í græjuna.
Þessi aðgerð tekur ca 10 mínútur fyrir vanann mann - og má fullyrða að ég reikna tímann rúmlega. Ég var btw ekki að heimta recovery á gögnunum sem voru á disknum. Ég veit hvar mannlegur máttur endar - auðveldur kúnni really.
Jæja...
Ég fór með græjuna í viðgerð. Þar átti sér stað mikil skýrslutaka, fine. Ég sagði manninum að diskurinn væri ónýtur, það heyrðist um leið og þessu væri stungið í samband. Nei.. það var ekki hægt, nema.. ef ég vildi borga 3900 kall sem er "flýtigjald" en þá er gert við hlutinn samdægurs.
Nei, ég vildi ekki borga tæpar fjögur þúsund krónur í flýtigjald fyrir viðgerð á nýjum hlut í ábyrgð, eitthvað sem tekur ófatlaðan einstakling með common sense 10 mínútur að gera. Ekki séns. Þeir gætu t.d. látið mig fá nýjan harðan disk og ég gæti gert þetta sjálf, in the privacy of my own home. Neinei.. ég gat bara hoppað upp í rassgatið á mér [mitt orðalag]. Græjunni yrði ekki stungið í samband fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjá virka daga. Og ég sem var búin að sjúkdómsgreina draslið fyrir þá og það eina sem þurfti til að staðfesta greiningu mína var sæmileg heyrn og rafmagnsinnstunga. Þeir hefðu átt að borga mér fyrir það ónæði og óþægindi að þurfa að koma með þetta á staðinn. Það er ekki eins og þetta hafi verið eitthvað drasl, 250 GB Western Digital, sem á að vera top of the line.
Ég hristi höfuðið. Það var augljóst að ég færi ekki heim með græju sem virkaði frá þessu þjónustufyrirtæki, a.m.k. ekki samdægurs. Ég skildi draslið eftir og ákvað að sjá hvað þeir myndu taka sér góðan tíma í þetta. Ég endurtek.. þetta var í hádeginu á miðvikudaginn í síðustu viku.
Klukkan 16:06 í gær var hringt í mig frá þessari búð: "Þú varst með græju í viðgerð hjá okkur, harði diskurinn var bilaður svo þú færð bara nýjann"
"-Já, er það virkilega" svaraði ég. Konan hélt að hún væri að segja mér fréttir.