www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Netveiðar
Þriðjudagur, 02. ágúst 2005

Hljóð hönnuðurinn var að senda mér cool tónlist og spyrja mig fleiri spurninga, varðandi tónlist. Áhugaverðar spurningar. Skemmtilegar pælingar. Byggðar á tónlistinni í song of the week.

Hann segir að það sé til tvenns konar fólk í heiminum. Fólk sem skynjar tónlist í gegnum textann á laginu og fólk sem skynjar tónlistina sjálfa. Hann segir mig vera í seinni flokknum og byggir það á svörunum sem ég sendi honum í dag, varðandi þessi tvö lög sem hann spurði mig um. Hann spurði líka sömu spurningar og hinir "ert þetta þú á myndinni?"

Stundum, þegar þetta gerist, finnst mér eins og ég sé eins og könguló, sit bara hér í rólegheitunum heima hjá mér og bíð eftir að álitlegir karlmenn festist í vefinum mínum svo ég geti.. nei það vantar nefnilega. Þeir eru í útlöndum og ég hef ekki áhuga á að gera neitt sem gæti breytt hvar þeir eru staddir í heiminum.

Bitlaus könguló það.

Þessir menn detta flestir inn í gegnum song of the week - af öllum stöðum - og finnst ég áhugaverð, af einhverjum ástæðum. Nei, það er reyndar kjaftæði, það er yfirleitt myndin efst til vinstri og þeim er slétt sama þótt ég segi þeim að hún sé photoshop-uð vegna þess að oftar en ekki eru þeir búnir að fletta upp öllum myndunum á síðunni áður en þeir hafa samband og eru búnir að sjá originalinn.

Þeir eru búnir að búa til prófíl byggðan á því sem þeir geta lesið á síðunni minni og því sem þeir geta séð. Fara í gegnum brandarana. Þeir sem eru ekki með sama húmor og ég, surfa einhvert annað, hinir fara yfir í galleríið, í von um að sjá fleiri myndir. Þar fá þeir hinsvegar mikilvægar upplýsingar. Mér finnst Jude Law flottur og Johnny Depp, fíla woody allen, catwoman, the notebook (get ekki verið annað en kona) og mér finnst gaman að púsla. Þeir sjá allir í gegnum fingur sér með það.. lífsreyndir karlmenn vita að engin er fullkomin og sumum finnst þetta kostur. Þýðir að ég get setið og dundað mér klukkutímunum saman - að öllum líkindum þegjandi.

Með þessar upplýsingar virðast þeir flestir komast að eftirfarandi niðurstöðu:

Hér er kona með dirty mind sem vill myndarlega menn sem eru above average klárir, hafa eðal húmor og fíla latex. Ef þetta er eitthvað sem þeir fíla ekki, eða uppfylla ekki kröfurnar.. (ég hef ekki ennþá fengið póst frá manni sem er ekki helv myndarlegur og margir karlmenn ofmeta eigið gáfnafar gróflega - en sem betur fer.. ekki allir) surfa þeir eitthvað annað.. hinir... skoða beauty is pain og sjá þar gaddavírs bikiníið. Flestir fatta að þetta er eitthvað sem ég er að sauma og búa til mental image af pamelu anderson, í þessu bikiníi með hausinn af mér í stað hennar. Sjá líka myndina af naglaviðgerðinni og reikna með því að ég sé soldil prinsessa - sem er rangt, en skiptir ekki máli því það er ekki fráhrindandi. Myndin af mér sýnir líka frekar saklausa, meinlausa stelpu sem vegur upp á móti norninni sem galdradúkkurnar gætu gert mig að og karlmenn trúa því sem hentar þeim, þangað til annað kemur í ljós. Latex og dirty mind er í raun alveg nógu mikill grundvöllur to make contact fyrir þá, þó þeir ímyndi sér oftast að það sé út af einhverju allt öðru.

Já.. og einhverra hluta vegna eru þetta vanalega menn á mínum aldri, veit ekki af hverju það er. Líklega er það bara áhugasviðið sem ég er með on display. Samt.. mjög spes því þetta bregst ekki. Með fyrirvara um hljóðmanninn, veit ekki hvað hann er gamall.

Þeir hlusta á hljóðin næst.. aftur.. ef þetta er eitthvað sem þeir fíla.. þá skoða þeir galdradúkkurnar en eru yfirleitt orðnir húkkt hvort sem er, senda póst á netfangið sem ég gef upp þar - en eru skíthræddir, sem virðist samt hvetja þá til dáða. Alveg stórmerkilegt. Og þeir viðurkenna það fúslega! Aðrir fara einfaldari leiðina og senda póst á movie hall of fame og spyrja mig hvernig þeir geti komist í samband við mig... eða, réttara sagt: í samband við stelpuna á myndinni.

Það er nefnilega allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Ég hef aldrei séð ástæðu til að gefa upp netfang á síðunni. Þetta er samt sá fyrsti sem lætur vaða á hið augljósa: anna (hjá) anna.is.

Stuttu síðar fara þýðingarvélarnar að gubba út úr sér illskiljanlegum texta sem þeir reyna að ráða úr. Sem er stærsti success faktorinn í þessu öllu. Þeir sjá að ég drita út bloggum og þeir skilja ekki orð af því, svo þeir geta ímyndað sér hvað ég er að skrifa. Sagði það áðan, karlmenn trúa því sem þeir vilja trúa og því sem hentar þeim að trúa. Það hentar einum að trúa því að ég skrifi um hvernig ég bjarga lífum daglega og gef allar jarðneskar eigur mína til góðgerðastarfa á meðan það hentar öðrum að trúa því að ég sé tík frá helvíti sem elskar að fara illa með karlmenn, en með engils ásjónu.

Ég trúi því að fólk megi trúa því sem það vill! - Á meðan það skaðar engan.

Auðvitað er ég ekki að nota síðuna mína til að veiða útlendinga. Ef ég væri systematískt að því myndi ég skrifa hana á ensku. Það getur verið að síðan mín þjóni einmitt þeim tilgangi að fæla fólk frá, eins og mér var bent á nýlega.


| anna | 0:36 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web