www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ný og betri vél
Miðvikudagur, 10. ágúst 2005

Staðan eftir manúveringar helgarinnar er þannig að vélin mín er í 'k, þannig lagað, en vélin hennar Jóhönnu var og er fokkd.

Móðurborðið er of gamalt til að lesa wd diskinn sem ég ætlaði að láta hana fá. Skjákortið var líka ónýtt en ég var svo heppin að hitta mann sem gat látið mig fá nýtt/gamalt skjákort á mánudaginn - sem virkar - ekki.

Sat uppi með spurningar sem ég gat ekki svarað. Hvað geri ég? Kaupi nýtt móðurborð? Nýtt skjákort? Tjah.. þá er þetta meira orðin spurning um að ég kaupi mér nýja vél, láti Jóhönnu fá mína og noti 17 GB disk, móðurborðs-fokk-vélina verða... soldið annað. Mig hefur reyndar lengi vantað hálf ónýta vél sem ég get tengt netinu og ég þarf ekki að hafa mikið pláss á henni. Bygons.

Ég lofaði Jóhönnu að hún myndi fá vélina sína up and running, tók reyndar ekki fram hvenær hún yrði up and running.. en ég lofaði líka að hún yrði betri en hún var áður en ég réðist í þessar breytingar.

Myndin í færslunni á undan er af mér að hugsa, ég sný andlitinu fram, þó hárið á mér sé fyrir.

Enter: Tosi.

158_5856.jpgTosi kom hingað í kvöld til þess að finna út af hverju motherfucking móðurborðið las ekki friggin diskinn, kom með jumpera to last me a lifetime, eins og meðfylgjandi mynd sannar. Hann sagði að þetta væri allt sem er eftir af pc legacy-inu, þar sem hann hefur frelsast og farið yfir í makkann. Hann var í ljósum kufli.

Við komumst nú ekki langt, því um leið og ég setti vélina í samband sló ég út rafmagninu í íbúðinni, Dodda til ama og leiðinda þar sem hann var að spila Rayman. Þegar ég var búin að setja rafmagnið aftur á spurði ég Tosa hvort ég ætti ekki að kaupa mér nýja vél og láta Jóhönnu fá mína. Hann horfði á vélina mína sem er opin eins og karfi á færibandi svo dýrðin blasir við. Tosi kíkti inn í kassann, gretti sig örlítið of fitjaði upp á nefið eins og hann hefði séð eitthvað sem er búið að vera dautt lengi, þagði í smá stund og þegar hann tók til máls sagðist hann eiga Dell vél sem Jóhanna gæti fengið en... það eina vitræna fyrir mig að gera í stöðunni.. er að fá mér nýja vél! - Sem er það sama og Indriði sagði við mig á laugardaginn. Það þurfa ekki fleiri að segja mér það.. þetta blasir allt í einu við.

Staðan er sumsé svona: Jóhanna fær topp vél inn í herbergi á morgun, vél sem outperformar mína by far, og ég...

Ég þarf að safna saman glerjum, og klinki. hehe


| anna | 0:05 |
comments

hehehehehe

Nr. 1 | posted by: anna | 10.08.2005 | 13:39:08 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web