Veit einhver um tilfelli þar sem kattarofnæmi hreinlega gufar upp hjá einstaklingi.
| anna | 9:18 |
comments
Já, ég veit um þó nokkur svoleiðis tilfelli og hef fengið tilvist þeirra staðfesta hjá eiginmanni mínum erfðafræðingnum, sem vann eitt sinn við rannsóknir á ónæmiskerfum. það er nefnilega þannig að ónæmiskerfi manna er ekki stabílt og fast í eitt skipti fyrir öll. Ónæmiskerfið er síbreytilegt og því mjög líklegt að eitthvað sem veldur ofnæmi á einum tíma gera það ekki á öðrum.
Ég var einu sinni með svakalega svæsið ofnæmi fyrir rauðvíni í nokkur ár en er vaxin uppúr því (drakk það úr mér).
Þannig er nú það.
Þetta er ekkert smá magnað! Ég var einu sinni lögð inn á spítala vegna kattarofnæmis, svo svæsið var það. Hef gert mér far um að koma ekki nálægt kisum í nærri 20 ár, ekki farið á heimili þar sem kettir eru o.s.frv. en er smám saman að prufa núna og ég finn ekki fyrir neinu ofnæmi. Í gær heimsótti ég vinkonu mína sem á lítin kettling og ég ákvað að put it to the test, gróf nefið ofaní feldinn á honum, kyssti hann og knúsaði gjörsamlega út í eitt í rúma tvo tíma og ekkert gerðist. Ég þori varla að trúa þessu. Fann reyndar grein á netinu sem gæti skýrt af hverju ekkert gerðist í þetta sinn:
Unfortunately, if you are looking to buy a kitten, this doesn't help you very much. All kittens have soft, supple skins. At this early age, an allergic person can probably handle any one of them and not have much, if any, of a reaction. It is as the skin ages and becomes less supple and the sebaceous glands begin to produce more oils (sebum) that allergy problems begin to appear.
-en.. ég var í afmæli um daginn þar sem tveir fullorðnir kettir búa og ég fann ekkert heldur. Ég var þar í rúma tvo tíma líka. Eins og ég var hefði ég enst í hálftíma topps. Ég þarf að kanna þetta betur.
Nr. 2 | posted by: anna |
18.08.2005 | 11:09:21 | [+] |
Ég var að lesa einhvers staðar um daginn að ákveðið hlutfall - minnir að það hafi verið 20-25% - allra barna sem fá jarðhnetuofnæmi ung að árum vaxi upp úr því. Það getur að vísu komið upp aftur en samkvæmt rannsóknum er hættan á að það gerist minni ef fólk borðar jarðhnetur eða vörur gerðar úr þeim nokkuð stöðugt.
Kannski gildir sama með ketti, þú hefur vaxið upp úr kattaofnæminu og ættir að fá þér kött hið snarasta.
hmmm, nú er ég með mjög slæmt kattarofnæmi og hef alltaf verið. Ég hef fengið stöðuga staðfestingu á þessu þar sem nánast allir fjölskyldumeðlimir og margir vinir í gengum tíðina hafa átt eða eiga ketti. Nú langar mig að forvitnast, hvernig í ósköpunum gastu komist hjá því að fara inná heimili þar sem kettir búa? Ég hélt að það væri algengara en ekki að eiga kött. Er ég bara eitthvað rugluð?
Þetta er mjög einfalt Tótalí. Ef fólk fékk sér kött, þá hætti ég að koma í heimsókn. Mjög fáir sem ég þekki eiga kött. Kannski vegna þess að þegar fólk fær sér kött.. hætti ég að þekkja það.. wahahahahahaha
Kettir voru mitt kryptonít.
Mér finnst kettir algjörar dúllur en ég vaknaði einu sinni með köttinn hennar systur minnar uppí rúminu mínu og gat ekki andað, var keyrð í loftköstum á spítala þar sem ofnæmislyfjum var dælt í mig þangað til ég fór að geta andað aftur.
Mig langar að eiga kött.. svona.. í ævintýrunum, ætla ekki að gera það í alvörunni. Gaman samt að geta umgengist þá vandræðalaust aftur.
Mig langar meira í hund heldur en kött og er að skoða það aðeins. Annaðhvort hund.. eða mann sem er loðinn á bakinu og fílar að vera hafður í ól.
múhohohoho
Nr. 5 | posted by: anna |
18.08.2005 | 15:59:35 | [+] |
Já ég er eitt slíkt tilfelli. Er núna hamingjusamur í sambúð með tveimur sérvitrum síamsköttum.
Ég var svæsið tilfelli, dró heimilislausa ketti heim og stóð á andanum, gat ekki snert neitt sem loðið var, nema breytast í Quasimodo. Ég þoldi reyndar ekki heldur mjólkurvörur og átti bágt á vorin. En..... ég dró ketti heim, veika rottu, mýs, hamstra og velti mér með hundunum. Hamaðist á túnunum á vorin og drakk mjólk eins og fengi ég borgað fyrir það.
Í dag á ég þrjá ketti, einn páfagauk, hef átt tvo hunda og slatta af hestum, ég velti mér í grasinu á vorin og ég borða skyr.is í lítravís. Never been better