www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
If you wanna get down, you gotta take her out..
Föstudagur, 05. ágúst 2005

Dagurinn í dag er búinn að vera mjög viðburðaríkur. Ég keypti mér eldhúsáhald í hádeginu, sem ég er reyndar búin að vera á leiðinni að kaupa mér í soldinn tíma.

Ég man skrítna hluti og ég vissi að ég gæti fundið þetta ákveðna eldhúsáhald í Europris, því þegar ég fór í Europris fyrir löngu síðan var mér starsýnt á viðkomandi hlut því ég gat ekki ímyndað mér hvað hann var að gera á þessum stað í búðinni, þ.e. hjá eldhúsáhöldunum. Velti því líka fyrir mér hvaða bjálka fólk væri að fjarlægja þegar það notaði svona monster, hvort þetta væri upprunalega frá sjónvarpsmarkaðnum komið því það blasir við að flís sem krefst svona tóls er hægt að fjarlægja með t.d. fingrunum, rörtöng, klaufhamri? Það þarf ekki svona dót til - eins og á við svo margt sem er frá sjónvarpsmarkaðnum.

Að lokum ákvað ég að.. after all.. þá er þetta Europris! Furðulegasta vörusamsetning norðan Alpafjalla og ég var alveg tilbúin að fyrirgefa flísatöng fyrir risa við hliðiná ausu og steikargaffli.

En þetta var geymt en ekki gleymt í hausnum á mér.. svipað og ég hafi séð eitt af sjö furðum veraldar - í Europris. Nema.. seinna, löngu, löngu seinna.. var ég vitni að því hvernig á að nota þetta í eldhúsinu og ég var heilluð. Gjörsamlega.

She don't lie, she don't lie, she don't lie...

(er enn að hlusta á cocaine)

Já.. þannig að af því ég er að fara að elda mat sem krefst þess að ég eigi oversized flísatöng og þar sem ég hafði nokkrar mínútur lausar eftir bónusferðina með börnunum í hádeginu, sem er saga útaf fyrir sig, ákvað ég að fara í Europris og kaupa svona töng - í dag. Sól úti, peningur á kortinu mínu og svona. Þetta kemur fyrir.

Ég gæti skrifað bók um Europris. Manni líður eins og maður hafi farið í eitthvað portal inní aðra vídd. Stöffið sem maður sér þarna, ég segi fyrir mitt leyti.. hver þarf nýlistasafn á meðan maður hefur Europris? Maður spyr sig. Vitiði að ég sá eitthvað sem líktist akkeri þarna inni? Nei, bara..

Þetta er í annað eða þriðja skiptið á ævinni sem ég fer inní þessa búð og í fyrra skiptið gekk ég heilluð um gangana og skoðaði dótið sem er hægt að kaupa. Þá keypti ég mér hnífapör, því ég var að skilja við þau sem ég átti fyrir og vantaði ný. Í þetta skipti fór ég til að kaupa risastóra flísatöng en ég fann soldið annað sem ég keypti líka: Flugdreka.

She don't lie, she don't lie, she don't lie..

Þegar ég var lítil stelpa keypti pabbi rosalega flottann flugdreka. Hann var appelsínugulur með bláu.. segir maður slöri? Skotti eða hvað sem þetta er kallað. Mér fannst hann svoooo flottur.. en ég var of lítil til að ráða við hann en mér fannst æðislegt að horfa á pabba fljúga honum. Góðar minningar.

Nema hvað.. mig hefur alltaf langað til að fljúga flugdreka en einhverra hluta vegna aldrei gert neitt í því máli, dettur mér í hug. Ætli það séu fimm ár síðan ég ákvað að skipta um mynd í debetkortinu mínu? Ég verð orðin svo gömul að myndin í debetkortinu verður aftur orðin flottari en ég sjálf þegar ég geng loksins í það mál...

Ég keyrði krakkana heim með allan matinn - og flísatöngina, gekk frá inní skápa, henti mat á borðið fyrir börnin og rauk svo aftur í vinnuna. Fattaði þegar ég fékk mér sæti við skrifborðið mitt að ég gleymdi einu smáatriði: að borða sjálf.

She don't lie, she don't lie, she don't lie..

Á sama andartaki rifjaðist upp fyrir mér að ég var á nippinu í morgun og hafði ekki tíma til að borða þá heldur. Ég hélt áfram að rippa diska og svara fyrirspurnum samhliða og smám saman fór ég að verða fokk pirruð, þangað til ég hlustaði á cocaine, þá blasti hreinlega við mér hvað ég ætti að gera!

Ég var einmitt að klára að rippa síðasta diskinn, tók hann úr vélinni, setti hann í diskamöppuna, forwardaði símanum mínum í annan síma, stóð upp og fór...

...heim og bjó mér til ljúffenga samloku og svo fór ég með krökkunum út að fljúga flugdreka.. OG ÞAÐ VAR SVO GAMAN! Alveg vissi ég að það væri gaman. Sá það á svipnum á pabba í gamla daga.

Doddi var á myndavélinni og við Jóhanna skiptumst á að krassa drekanum, því hvorug okkar kann að fljúga flugdreka.

She don't lie, she don't lie, she don't lie..

Í byrjun leit út fyrir að flugdrekinn væri andsetinn því alltaf þegar hann tókst á loft snarstoppaði hann skyndilega og hrapaði - í áttina að hausnum á Dodda. Skipti engu máli hvar hann kom sér fyrir. Alveg stórmerkilegt. Doddi var líka sofnaður í sófanum fyrir klukkan tíu, enda eyddi hann góðum hluta dagsins í að hlaupa sér til lífs á milli þess sem hann reyndi að taka myndir af okkur, þessi dúlla.

Þegar við vorum búin að fljúga flugdrekanum gerði ég samning við börnin, við myndum þrífa alla íbúðina saman, á eftir myndi ég poppa (önnur saga sem bíður betri tíma) og horfa svo á eina glötuðustu drakúla spoof mynd allra tíma: "Love at first bite". Elska þessa mynd.

Það fóru ca tveir klukkutímar í þessa tiltekt og eftir mat fengum við okkur sæti saman og horfðum á myndina. Þar sem Jóhanna veit hvað Drakúla er hafði hún alveg húmor fyrir George Hamilton, sólbrúnum og flottum í hlutverki greifans. Doddi hafði mestar áhyggjur af því hvernig hann gæti bitið og ekki gert viðkomandi strax að vampíru, svo ég útskýrði fyrir honum í stuttu máli að það þarf að bíta þrisvar - eins og allir vita, nema þeir sem hafa lesið eitthverja rökleysu.

She don't lie, she don't lie, she don't lie...

Þegar myndin, sem ég tók upp úr sjónvarpinu einhvertíma, var búin kom í ljós önnur mynd á eftir: My Cousin Vinnie og ég hugsaði "what the hey" og leyfði Jóhönnu að horfa á hana líka á meðan ég kláraði íbúðina. Ég hef svo gaman að Joe Pesci í þessari mynd, fíla Brooklyn taktana bæði í honum og Marisa Tomei. Brooklyn er cool.

Það þarf ekki kjarneðlisfræðing til að segja mér að ég verði á nippinu að vakna aftur á morgun, fyrst klukkan er orðin það sem hún er.. og þó ég gæti spurt kjarneðlisfræðingin sem býr á 2. hæð.. þá held ég að hann myndi bara skamma mig fyrir að vekja hann.

Yeah, good times!

She don't lie, she don't lie, she don't lie...


| anna | 1:15 |
comments

Fagfólk myndi sjálfsagt kalla þetta pinsettu. Nauðsynlegt á hverju heimili. Hef samt ekki fundið neitt notagildi fyrir þetta annað en krukka í dauðar skepnur og kraka út lausa jaxla (ég á tvær).

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 5.08.2005 | 5:53:00 | [+] |

Pinsetta, voðalega er það eitthvað gay orð. Mér dettur í hug ballerínupils, af einhverjum óútskýranlegum ástæðum. doubt

Jaxla segirðu.. já nú má Doddi fara að vara sig, þó ég efist stórlega um að hann hleypi mér uppí skoltinn á sér með þessa græju!

Nr. 2 | posted by: anna | 5.08.2005 | 9:58:52 | [+] |

Síðast þegar ég fór í Europris var norskt vatn í 10 lítra dunkum á tilboði... þessi búð skelfir mig.

Nr. 3 | posted by: greynir | 5.08.2005 | 10:20:01 | [+] |

Það er nú bara skerí.

Nr. 4 | posted by: anna | 5.08.2005 | 10:29:06 | [+] |

Ég er búin að hugsa mér alla mögulega hluti sem hægt væri að beita þessari risavöxnu flísatöng í..... blank...blank....blank hmmm
Ég hef þó hugleitt hversu margir fjárfesti í norska vatnið og bíð enn eftir leiðbeiningarbæklingi við innkaupin við innganginn á Europris, get hæglega eytt drjúgum tíma þarna aðeins til að átta mig á notagildi ýmissa hluta...en þessi hyperflísatöng *klóríhaus*

Nr. 5 | posted by: elín | 6.08.2005 | 20:32:25 | [+] |

Já pinsetta er þetta kallað á fagmáli og getur örugglega komið að gagni einhverntímann ef þú verður mjög mjög óheppin með deit!! toungue evil

Nr. 6 | posted by: eddið | 10.08.2005 | 23:04:19 | [+] |

shit, það tók mig nú alveg morguninn að fatta hvað þú meinar.

Enn ein ástæðan til að hætta að deita.

Nr. 7 | posted by: anna | 11.08.2005 | 10:50:19 | [+] |

Já, það er margt skrítið í tilverunni...... You need a life..................... nerd

Nr. 8 | posted by: dúddi á fiðlunni | 23.05.2006 | 11:41:06 | [+] |

Dúddi. You really know how to cut to the core of me. Þú ert eins og lítill búdda - með teina. Hvernig vissirðu að ég á mér ekkert líf?

Nr. 9 | posted by: anna | 23.05.2006 | 11:55:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web