Sunnudagur, 21. ágúst 2005

Á myndinni hér að ofan sést hluti af bílnum mínum eins og hann var klukkan átta á laugardagsmorguninn.
Þetta er margra mánaða skítur og drulla, svo mikil drulla að þegar afgreiðslumaðurinn á bensínstöðinni var búin að kíkja á málið fór hann með mig inná lager þar sem hann veiddi kassa úr efstu hillunni og upp úr honum tók hann ómerktan spreybrúsa. "Þú þarft á þessu að halda" sagði hann og svo tók hann hughreystandi um öxlina á mér.
Á myndinni hér fyrir neðan sést hluti af sama bíl eins og hann var seinnipartinn í dag.

Ég pantaði pizzu í kvöldmatinn og er búin að liggja í sófanum í allan dag. Mér líður eins og ég hafi orðið fyrir lest.
Stimpla mig kannski inn seinna í vikunni, þegar ég er farin að fá mátt í hægri höndina. Erfitt að pikka með vinstri.
Lag vikunnar er tileinkað Myrkrahöfðingjanum, sem hefur aldrei verið flottari. Glöggir lesendur sjá kannski að ég er búin að setja draslið á afturljósið. Gerði það snemma í morgun, þegar ég var búin að fjárfesta í skiptilykli í Byko, sem opna ekki fyrr en klukkan tíu - á sunnudögum. Note to self: skiptilyklar í Byko eru drasl, kaupa fasta lykla.
cause you're filthy.. OOOHHHHHHhhhhhh gorgeous...