Sunnudagur, 14. ágúst 2005
Ég burstaði Halldór í skrabbli í dag. Hann er náttúrlega veikur og stundi "ef þetta er ekki skýrt merki um að maður ætti að fremja sjálfsmorð" þegar stigin lágu fyrir.
Ég spila á hvolfi. Finnst ég eigi að fá meiri stig fyrir það, en sannleikurinn er að mér líður betur að hafa orðin á hvolfi. Spes. Stundum þekki ég ekki orðin þegar þau eru á hvolfi (ég er að ljúga þessu, stundum þekki ég ekki orð.. en vil bara ekki gangast við því) eins og í dag þegar Dórið lagði niður orðið "hæf". Mér datt strax í hug "hive" og hélt að hann væri að vera fyndinn, sagði: "nei Halldór, þetta er ekki orð". Halldór dó úr hlátri og sagði ekki furða að ég þekki ekki orðið, þar sem ég hef aldrei heyrt það áður, enda vanhæf með öllu. Ég dó úr hlátri.
Næsta orð sem ég lagði niður var "geðsýki", hann lagði niður "loðin" og ég lagði niður "órökuð".
"Þránaðir" var á borðinu og ég spurði hvort hann væri sáttur við að ég setti "ó" fyrir framan. "Óþránaðir? óþránaðir?? Tilkynningar, tilkynningar.. vorum að fá óþránaða ávexti, óþránað súkkulaði, verslanir Nóatúns. Óþránað??? ÞAÐ HEITIR FERSKT ANNA!"
Já.. þú meinar.