www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"dettumíða"
Laugardagur, 13. ágúst 2005

Þegar ég var búin að droppa krökkunum off í gær hringdi Dofri í mig og bauð mér með sér í afmæli.

Anna og kötturinn

(ég og köttur afmælisbarnsins)

Ótrúlega mikið af fólki sem kemur í þetta afmæli og allskonar fólki. Ég hitti tvær konur sem ég þekki ekki en hef myndað mér skoðanir á, lít upp til þeirra á ákveðinn hátt og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Nönnu matargúru og Auði Haralds. Ég man eftir því þegar ég bókstaflega grenjaði úr hlátri þegar ég las bókina "Ung há, feig og ljóshærð" (- titill er skrifaður eftir slæmu minni). Þessi bók rústaði gjörsamlega steríótýpu kvenímyndinni og Auður gerði þetta af stakri snilld. Að hitta Nönnu fannst mér svo gaman og við eigum nú fleira sameiginlegt en bloggið þó að hún geti galdrað í eldhúsinu en ekki ég. Þótt Jude hafi nú reyndar aldrei kvartað, en Sadie gat náttúrlega ekki eldað worth shit. Sem er önnur saga entierly. Bygons.

Ég fór heim, settist við tölvuna og fór að spjalla á msn við fólk og endaði á að spjalla við vin minn sem endaði á að senda "hei! dettumíða" (og já Dofri.. það gera þetta fleiri en þú) nema ég var í stuði til að kjafta face to face for once og tók manninn á orðinu, fór útí bíl og var mætt á svæðið korteri seinna.

Hann var hinsvegar langt frá því að vera að grínast og sá um að blanda drykkina. Á þremur tímum hellti hann mig svo blind, auga fulla að ég stóð varla í lappirnar. Á einhverjum tímapunkti reyndi hann að kenna mér að drekka viskí. Mig rámar í að ég hafi eitthvað þefað af þessu.. og fundið málmbragð.. og hann varð stórhneykslaður á mér, sagði að þetta væri eikarbragð.. en ég hef aldrei smakkað eik.. svo kannski er hún eins á bragðið og járnskrúfur.. sem ég hef smakkað... sem er önnur saga.. bygons.

Hann fór að hlæja þegar ég skakklappaðist á klósettið því göngulag mitt svipaði til göngulags róna.

Ég var rosalega lengi inná baði því ég var í flóknum buxum svo það var töluverð þraut að koma þeim upp um mig og tala nú ekki um, hneppa öllum tölum og renna upp og festa beltið og svona. Maður vill ekki vera lausgirtur.

Nema klukkan þrjú áttaði ég mig á því að ég var orðin of drukkin til að fara heim, svo ég spurði hvort ég mætti gista hjá honum. Hann gerði þau stóru mistök að segja já, því ég er eins og vampíra að því leyti.. þegar búið er að bjóða mig velkomna þá læt ég eins og ég sé heima hjá mér.. svo ég skrönglaðist aftur á klósettið nema í þetta skipti nennti ég ekki að festa buxurnar upp um mig nema að litlu leyti, notaði hundalógíkina á málið og vissi að ég var um það bil að fara úr þeim hvort sem er, innbyggður radar minn vísaði mér á svefnherbergið. Á leiðinni láku buxurnar hægt niðrum mig og runnu af þegar ég hálf datt í rúmið. Ég dó um leið og höfuðið á mér snerti koddann.

Í morgun vaknaði ég við það að hann var að ýta mér yfir á minn helming á rúminu. Ég hafði alla nóttina notað passive aggressive leiðina til að mjaka honum út á ystu brún og hann var við það að detta á gólfið. Kom mér samt á óvart að ég var ekkert búin að einoka sængina, en þetta er reyndar mjög stór sæng. Kannski geri ég það bara seinna. Ég er jú kona. Dívíus

Hann sagði mér að ég hefði drukkið heilann pela af gini. Jájá. Ég er einmitt manneskja sem þolir pela af áfengi á þremur klukkutímum. Mesta mildi að ég hafi ekki ælt allt út og sofnað með höfuðið ofaní klósettinu - með buxurnar á hælunum. Það hefði verið verulega smart.

Þetta var óvænt og yndislegt en óheppilegt að því leyti að eins og löngu ákveðið var.. þá ég er að fara á djammið í kvöld. Veit ekki hvort það borgar sig að tvídrekka. Ég velti því líka fyrir mér hvort ég á að fara í kjólnum sem ég keypti.. eða einhverju öðru.

Og já.. ég held að ég hafi fengið ærsladraug hjá Auði. Annaðhvort það.. eða það er einhver útá svölum að banka á gluggana. Eða.. nei andsk.. ég droppaði krökkunum off, ég er alveg viss um það!


| anna | 15:54 |
comments

Þetta er undarleg saga en býsna góð.

Nr. 1 | posted by: Ragz | 13.08.2005 | 17:34:34 | [+] |

Takk fyrir að koma í afmælið mitt wave en hvernig tókst þér að ná feitu kisu, eineltiskisunni henni Támínu, upp á bekkinn til þín? Þú hlýtur að vera göldrótt.
Gaman að blogginu þínu, fann þig í gegnum Nönnu Rögnvaldar þegar ég rakst á umræður um afmælið mitt embarassed
Sjáumst að ári.
Gurrí

Nr. 2 | posted by: Gurrí | 16.08.2005 | 10:26:33 | [+] |

Támína sat fyrst á gólfinu og horfði á mig, svo stökk hún upp á bekkinn og skoðaði mig betur. Kettir eiga til að hænast að mér, ég kann ekki skýringu á því. Kannski vegna þess að ég er pínu göldrótt. wink

Þakka þér! Ég skemmti mér rosalega vel og hlakka til að koma í afmælið þitt að ári! wave

Nr. 3 | posted by: anna | 16.08.2005 | 10:38:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web