www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Confirm the kill!
Mánudagur, 01. ágúst 2005

Hún systir mín átti afmæli á föstudaginn. Í dag bauð hún mér í afmælisveislu heima hjá sér. Rétt áður en afmælið byrjaði hringdi hún og sagði að afmælið hefði færst, vegna tæknilegra örðugleika, heim til mín.

Klukkutíma síðar kom hún með pizzur, kerti og börnin mín og afmælisveislan byrjaði.

155_5504.jpg

Þegar við vorum búin að eta og drekka nægju okkar og syngja skáta-útgáfu afmælissöngsins, leiddist okkur. Júlía stakk uppá að við færum í "hver er undir teppinu", en þar sem við vorum bara fjögur ákváðum við að fara í lítt þekktari útgáfu þessa leiks, sem heitir "hvaða svipur er undir teppinu". Þá skiptist fólk á að standa útá miðju gólfi og halda teppi fyrir andlitinu og hinir giska á hvaða svip viðkomandi er með. Ég skíttapaði, var að kúka og það fattaðist í 2. giski.

Næst ákváðum við að spila auðveldari útgáfu þessa leiks sem heitir: "hver er svipurinn" og er spilað án teppis. Ég tapaði líka, var í ástarsorg.

Þá gerðist það.. það sem ég er að blogga um. Júlía var'ann og mér sýndist hún vera tortryggin, reið, eða jafnvel hugsandi.. þegar hún skipti um svip, varð hissa og sagði "hvaða djöfuls hlussa er nú þetta?!" og átti við flugu sem hafði lent á stofuborðinu, ekki mig. Jóhanna náði í flugnaspaðann og slóst við Júlíu um hvor þeirra ætti að myrða flugugreyið. Júlía púllaði "en ég er afmælisbarnið" og Jóhanna bakkaði samstundis.

Það var þögn í stofunni þegar Júlía lænaði upp flugnaspaðanum og gaf svo eitt, hálf slakt högg, svona svipað og ef maður stæði fyrir framan risa og gæfi honum selbita, svo flugan "hálf" flaug á gólfið þar sem hún reyndi að ná áttum í augnarblik. Þá spratt Júlía á fætur, þannig að okkur brá - og flugunni - og öskraði af öllum lífs og sálarkröftum: "OG NÚ, CONFIRM THE KILL!!!" svo sló hún spaðanum í fluguna aftur og aftur og aftur og aftur.. þangað til flugan var orðin mauk. Þá stóð hún í örskamma stund yfir líkinu og rak svo upp óhugnarlegann hlátur sem dó út þegar hún lét sig falla í stólinn og á andlit hennar braust fram sælubros.

Við hin litum þögul á hvort annað.

Hvaða tæknilegu örðugleikar urðu til þess að afmælið fluttist til mín?
Er mamma ennþá á lífi?

Maður spyr sig..


| anna | 18:04 |
comments

hljómar spennandi, en hvaða reglur eru aðrar en að fjórir mega ekki spila?

sko í 'hver er undir teppinu'

Nr. 1 | posted by: siggimus | 1.08.2005 | 19:13:18 | [+] |

Hvaða reglur eru aðrar? Kanntu ekki "hver er undir teppinu"????

Nr. 2 | posted by: anna | 1.08.2005 | 19:25:40 | [+] |

nei! embarassed

fórnarlamb erfiðrar æsku. átti hvorki mattador né útvegsspilið! þurfti að fara í heimsókn til að skemmta mér

það voru bara til púsl heima

Nr. 3 | posted by: siggimus | 1.08.2005 | 19:30:33 | [+] |

ó ég skil!

"Hver er undir teppinu" virkar best þegar margir, margir eru "að spila".

Því fleiri því betra. Einn er valinn og er sendur út úr herberginu. Því næst er einhver annar valinn og hann er látin leggjast á hart gólf og teppi er breytt yfir hann, þannig að það hylji viðkomandi algerlega. Þá er þeim sem var vísað út hleypt inn aftur og á sá aðili að giska á.. hver er undir teppinu.

Eins og gefur að skilja er erfitt að spila þetta þegar einungis fjórir eru að spila, nema þá ef mikið áfengi hefur verið innbyrgt. Annars blasir hreinlega við.. hvern af þessum þremur, sem eftir voru í herberginu, eru undir teppinu, þegar "giskaranum" er hleypt aftur inn.

Ég tala af reynslu.

Nr. 4 | posted by: anna | 1.08.2005 | 19:36:26 | [+] |

Ég skemmti mér samt svo vel í "Hvaða svipur er undir teppinu" að ég er að hugsa um að fá einkaleyfi á þetta og útfæra hmm jáh!
Annars er þetta með skemmtilegri afmælum sem ég hef haldið - hló svo mikið að ég átti bara erfitt með mig!! og fékk að drepa flugu! colgate

Nr. 5 | posted by: Júlía | 2.08.2005 | 0:30:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web