www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"Bíða aðeins"
Þriðjudagur, 16. ágúst 2005

Ég hef fundið leið til að hafa hemil á fíknum mínum, leiðin heitir: "bíða aðeins". Þar sem ég er viss um að engin annar hefur fundið þessa leið á undan mér ætla ég að skrifa bók, búa til prógram, hafa útibú í mörgum, mörgum löndum og eyða restinni af ævinni í að ferðast og halda fyrirlestra sem frelsa aðra fíkla.

hehehe

Ég horfi á nikótíntyggjópakkann. Mig langar í nikótíntyggjó. Ákveð að "bíða aðeins". Finn að fyrst ég fæ ekki nikótíntyggjó.. þá langar mig í venjulegt tyggjó en hugsa: "hvað er ég bættari með því að venja mig á venjulegt tyggjó?" "Bíð aðeins" með að fá mér tyggjó.

Þegar ég er búin að bíða aðeins finn ég fyrir hungurtilfinningu, eins og maður gerir þegar mann langar í nikótín. Ég finn að mig langar í eitthvað, og mér er nokk sama hvað það er.. og rétt áður en ég stend upp til að fara niður og fá mér eitthvað dísætt.. ákveð ég.. að bíða aðeins.

Shit hvað ég er dugleg að bíða aðeins.


| anna | 10:12 |
comments

beiðstu lengi með þessa færslu? nerd

Nr. 1 | posted by: soffi | 16.08.2005 | 13:26:04 | [+] |

Nei ekkert. Ég er í afneitun með blogg fíkn mína. drunk

Nr. 2 | posted by: anna | 16.08.2005 | 13:30:39 | [+] |

Eru litlu álfarnir farnir að hoppa um syngjandi í hausnum á þér , fáðérsígó fáðérsígó fáðérsígó fáðérsígó fáðérsígó fáðérsígó ?

Nr. 3 | posted by: Maggi G | 16.08.2005 | 17:34:25 | [+] |

Nei, hehe.. fáðértyggjó, fáðértyggjó.. langar ekki í sígarettu.

Nr. 4 | posted by: anna | 16.08.2005 | 17:44:02 | [+] |

stattu þig stelpa

Nr. 5 | posted by: Langi Sleði | 17.08.2005 | 23:15:14 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web