www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
What makes you tick
Laugardagur, 09. júlí 2005

"Þú ert soldið crazy".

Ég var ekki viss um að hann hefði sagt það, "Ha?", sagði ég, "hvað sagðirðu að ég væri?" "Þú ert soldið crazy", sagði hann aftur og brosti. "Ég vil vera það", sagði ég. "Ég veit", svaraði hann.

Ég held að honum finnist það fara mér vel. Ég held að hann myndi ekki vilja hafa mig öðruvísi.


| anna | 2:01 |
comments

Það er alveg bráðnauðsynlegt að vera soldið klikk. Það fær mann oftar en ekki til að prófa nýja hluti - hugsa út fyrir boxið. Það rýfur kyrrstöðu því hún, kyrrstaðan, veldur að lokum afturför.

Einmitt út af þessu stofnaði ég Klikkklúbbinn ásamt dóttur minni í Danmörku fyrir nokkrum árum. Skrifstofa og lögheimili eru í ákveðinni skrifstofubyggingu við Ráðhústorgið - ekki langt frá veitingastaðnum Vesuvío of Copenhagen. Klúbburinn var einmitt stofnaður á þeim veitingastað. Starfsemin er háleynileg en felst í megindráttum í því að rugla einhverja vitleysu.

Það er kannski þess vegna sem maður er ennþá að lesa og kommenta á þessa síðu nokkrum árum eftir að ég uppgötvaði hana.

Maybe?

Klikkun! Minnir mig á ferðina sem ég fór í til Lapplands í vetur. Fór í finnskt reyk-gufubað og síðan beint út í 30 stiga frost - nakinn. Dýfði mér síðan niður í vök á vatni rétt hjá - þurfti fyrsti að brjóta ísskánina til að komast í vatnið. Kalt. Djöfull kalt.

Nr. 1 | posted by: igor | 9.07.2005 | 14:03:06 | [+] |

Þetta er lífsstíll.

wahahahahahaha.. elska þetta orð.

Nr. 2 | posted by: anna | 11.07.2005 | 23:40:26 | [+] |

Í þessari ferð hafði ég möguleika á því að gjörbreyta um lífsstíl. Chance of a lifetime. Þar sem við gistum voru aðeins 23 km yfir til rússnesku landamæranna. Mér flaug í hug að flýja yfir járntjaldið og verða þannig fyrsti maðurinn til að flýja, í öfuga átt, eftir að kaldastríðinu lauk. Mig hefur alltaf dreymt um að gera eitthvað fyrstur manna. Ég bar hugmyndina undir ferðafélagana en það var eins og þeir áttuðu sig ekki á tækifærinu. Alltaf sama sagan með frumkvöðla. Sífelldur mótbyr.

Það er skemmst frá því að segja að ég guggnaði, fékk "cold feets" í bókstaflegri merkingu, því á leiðinni úr vökinni frusu iljarnar við ísinn. Náttúruöflin láta ekki að sér hæða.

Það fékk svo á mig að standa þarna gaddfreðin við ísinn, nakinn, í 30 stiga gaddi með grýlukertin lafandi niður úr...well, say no more, að ég hætti við flóttann.

Erfitt líf.

Nr. 3 | posted by: igor | 12.07.2005 | 0:50:09 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web