Fimmtudagur, 07. júlí 2005
Ég er smátt og smátt að komast að því hvað ég er sérvitur.
"Mér finnst gaman að púsla, en ég púsla bara púsluspil frá einum framleiðanda og af þeim púsluspilum sem hann framleiðir.. bara myndir sem einn teiknarinn þeirra teiknar"
Það eina vitræna í stöðunni er að ég verði rosalega rík, svo ég komist upp með að vera svona sérvitur. Það er annaðhvort það.. eða láta leggja sig inn á hæli. Sem betur fer er ég kona. Ég kem aldrei til með að enda á strætóbekk með skegg niður á tær talandi við sjálfa mig og fuglana.
Hef ekki skeggvöxtin í það.