www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skuldafangelsi í golfskála
Sunnudagur, 10. júlí 2005

Ég fór með krakkana út úr bænum um helgina. Kíktum á draugabústaðinn sem er mögulega að færast í eign fjölskyldunnar á næstu dögum, krökkunum fannst hann mjög flottur. Þaðan lá leið okkar í nærliggjandi golfskála þar sem við höfðum mælt okkur mót við mömmu og Begga. Við vorum svöng svo ég keypti fullt af mat (þrjár samlokur) nema þegar kom að því að greiða fyrir herlegheitin komst ég að því að ég var búin að týna debetkortinu mínu.

Glæsilegt.

151_5120.jpgÉg reyndi að bjóða manninum annað barnanna minna uppí skuldina en hann vildi þau bæði, sem mér finnst okurverð fyrir þrjár samlokur. Svo ég bauðst til að vinna uppí skuldina. Vildi svo heppilega til að hann þurfti að láta þeyta mökk af rjóma svo ég var sett á þeytarann, með bleyju framaná mér, á meðan börnin léku sér við vinalega hundinn hans.

Þegar ég var búin að þeyta fimm lítra af rjóma sagðist hann líta svo á að ég væri búin að vinna fyrir skuldinni og ég væri frjáls manneskja. Ég var mjög þakklát en finnst ironic að ég var að þeyta rjóma fyrir Og Vódafóna sem voru að koma í djamm þarna seinnipart dags. Ég vona að þeir hafi munað eftir að kjósa mann.

Ég fann debetkortið mitt í draugahúsinu seinna um daginn.

Annars var ég að kaupa mér Aivx og 250GB disk. Sem þýðir að bráðum fer ég að strauja. Meira að segja mjög bráðlega.. því þegar það er búið.. bíður mín.. lost, desperate houswives, arrested development, 24 og ógrynnin öll af afþreyingu.. sem ég get horft á þegar mig lystir.

Næst þegar ég á peninga sem ég veit ekki hvað ég á að gera við.. kaupi ég mér sjónvarp.


| anna | 21:50 |
comments

fer þér bara vel að vera með bleyju og þeyta rjóma

en ég hef fundið lausnina á því vandamáli að eiga pening sem ég veit ekki hvað ég á að gera við


hef ekkert þjáðst af þeim vanda síðan ég lærði að nota kreditkort alminlega

Nr. 1 | posted by: siggimus | 11.07.2005 | 0:14:23 | [+] |

Ég TRÚI ÞESSU EKKI! Það virkar, þetta meikar ekki sense! drunk

Nr. 2 | posted by: anna | 11.07.2005 | 9:30:22 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web