www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skriðsund
Sunnudagur, 03. júlí 2005

Í dag lærði ég eftirfarandi:

1. Ég þarf að nota mjaðmirnar ekki bara fótleggina
2. Það er ekki gott að nota froskalappir, því þá beitir maður fótleggjunum rangt
3. Maður færir hendurnar undir sig og heldur sér þannig stöðugum
4. Þú átt að horfa niður á botn og vera með djamm fíling í öxlunum
5. Ég þarf að teygja vel úr mér með höndunum og finna balans
6. Ég þar að muna að anda, annars sekkur rassinn á mér niður

Ég synti skriðsund í dag, svona nokkurnvegin skammlaust - 3 sundtök. Fyrir utan að ég kann ekki að anda. Næsti tími verður þegar ég er farin að geta synt af einhverju öryggi. Þá læri ég að anda.

Ég get þetta alveg. Ég er kona. Ég á að geta hugsað um margt í einu. Þó ég hökti og sé eins og spýtukall á meðan ég er að því. Það lagast.

Ég er með frábæran sundkennara


| anna | 17:30 |
comments

Góðar leiðbeiningar. Ég er búin að taka amk.3 svolítið meira formleg skriðsundnámskeið, mismunandi dýr (bestir þessir KR-ingar þarna vesturfrá), og er samt húkkt á utanborðsmótorinn... þ.e. froskalappirnar. Með þeim græjum fer maður nógu hratt yfir, að maður sekkur ekki á meðan maður lærir að gera margt í einu. Ekki gefast upp, þetta er allt að koma. Hálfnað er verk þá hafið er... hittumst í Vesturbæjarlauginni!

Nr. 1 | posted by: mamma | 3.07.2005 | 21:10:18 | [+] |

Er lif eftir daudann? Ja/nei/i sumum tilfellum ja.

Hvad er lif eftir daudann? Hvad er lif? Erum vid ad tala um endurholdgun? Framlengda vitsmunatilveru? Stred vid ad borga af lanunum, yet again - who needs it?

Helst vildi eg ad satt vaeri hid margkvedna: ollum gert kleift ad upplifa sma Her og nu of their own og fylgjast miskunnarlaust med naunganum. Adallega skyldmennum og svona.

Nei, eg var bara ad hugsa clown

Nr. 2 | posted by: Atviksorda-Anna | 3.07.2005 | 23:56:24 | [+] |

Eg var reyndar ad gera meira en ad hugsa: eg var ad hlusta a upptoku fra fundi minum med Sigridi Klingenberg fyrir 6 arum. Thad er alltaf jafn spuki. what

Nr. 3 | posted by: Atviksorda-Anna | 3.07.2005 | 23:58:07 | [+] |

Já.. sko mér finnst alltaf jafn krípí þegar ég er með karlmanni.. að lesa andrésblöð.. og hugsa til þess að kannski er amma þarna í einhverju horninu með pípuna sína að rannsaka hvort ég sé búin að þurrka nógu vel af.. eða skamma mig fyrir að geyma blöðin ekki í möppum og svona...

Svo ég tali nú ekki um þegar ég er ein að lesa andrésblöð. Mér finnst það eiginlega skerí tilhugsun og reyni að fela mig undir sæng þar sem hún sér mig ekki. Það er aftur á móti erfiðara þegar ég er í baði.

Ég held að ég ætti að fara að sofa núna.

Hver er Sigríður Klingenberg?

Nr. 4 | posted by: anna | 4.07.2005 | 0:23:48 | [+] |

SK er spamidill held eg. Eda spakona med aukahaefileika. Hun er god. En thu ert sennilega ekkert ad kaupa svona starfsemi, midad vid hvernig thu hefur adur tjad thig um midla. Goda nott.

Nr. 5 | posted by: Atviksorda-Anna | 4.07.2005 | 0:31:50 | [+] |

Hvar eru ísl stafirnir þínir?

True, en ég þekki margar konur sem hafa hreinlega fengið sáluhjálp hjá spámiðlum. Glætu í myrkrið. Spáðu.. kannski væri betur fyrir mér komið ef ég myndi drullast til að fara.

Það er besides the point. Var hún að virka fyrir þig?

Nr. 6 | posted by: anna | 4.07.2005 | 0:40:25 | [+] |

Jaja, hun virkadi fyrir mig sem hin besta skemmtun med wow factors ivafi.

Islensku stafirnir hurfu med gamla lyklabordi heimilisins. Vid fengum einhverja uttlenska druslu lanada i stadinn, otimabundid... Kannski er haegt ad breyta thessu rugli med e-i einfaldri adgerd, en thar ed eg er ekki tolvunord reikna eg ekki med ad finna ut ur thvi this side of christmas.

weepy

Nr. 7 | posted by: Atviksorda-Anna | 4.07.2005 | 8:07:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web