www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skoðun
Föstudagur, 15. júlí 2005

151_5170.jpgÉg gleymdi að skrifa um það sem gerðist á miðvikudagskvöldið. Ég fór til pabba að skipta um afturljós í bílnum mínum.

Þetta afturljós er ástæðan fyrir því að ég fór aldrei með bílinn minn í skoðun í fyrra.. ég fann ekki tíma og svo var ég of upptekin af því að vera út úr heiminum í einhverri ástar vímu, mátti bara ekki vera að því að hugsa um þetta! Ég er alveg búin að ná mér af því rugli. Nema svo gaf pústið sig og þá voru örlög skoðuninar fyrir árið 2005 ráðin, því ekki átti ég vara pústkerfi í skottinu þarna við hliðiná afturljósinu og ekki átti ég auka peninga heldur, jólin að koma og svona. Æ ég nenni ekki að fóðra þetta meir. Svona var þetta bara en það er ekki svona lengur. Á miðvikudagskvöldið tók ég nefnilega frá heila sjö klukkutíma og hugðist leggjast yfir þetta mál með hjálp pabba.

Við vorum í innan við korter að skipta um ljós.

Þegar ég fékk plast stykkið sem á að vera þarna á ljósinu var það skærblátt og þar sem ég er smekkmanneskja fannst mér ekki við hæfi að setja það ólakkað á ljósið, keypti lakk.. en því miður var fáviti sem afgreiddi mig.. og ég fékk rangan lit. Jújú.. lakkið er svart.. en ekki Myrkrahöfðingja svart. Sumir myndu segja að þetta sé smámunasemi en mér er bara alveg slétt sama. Ef þú hunsar öll smáatriði verður heildarmyndin tótal fíaskó, það er bara þannig.

Má alltaf skella þessu á síðar. Ég nenni ekki að fara spes ferð uppá höfða bara til að kaupa lakk, ef ég get lifað án þess.. í einhvern tíma.

151_5173.jpgÍ gær fór ég svo með bílinn í skoðun og hann flaug í gegn athugasemdarlaust.

Þrátt fyrir þetta er ég orðin brennimerkt kona. Ég er búin að vera svo lengi ólögleg að ég hef vanið mig á að fá háan blóðþrýsting og kvíðakast ef ég sé lögreglu og ég er búin að sjá rosalega marga lögreglubíla og lögreglumenn á mótorhjólum OG svo held ég að allir karlmenn séu óeinkennisklæddir lögreglumenn og hugsanlega er næsti bíll við hliðiná mér þegar ég er að keyra undercover lögregubíll.

Ég vona að ég verði fljót að venjast því að ég þurfi ekki lengur að vera svona paranoid. Þetta er bara orðið of mikið álag á taugakerfið og á endanum verð ég að fara allra minna ferða í strætó!


| anna | 19:36 |
comments

Og eg ryksaug bilinn minn, oll 7 saetin + golf + skottid, pussadi rudur innvortis, sprayadi nyjum ilmi a maelabordid - in short gerdi allt nema bona styrid. Eg hleypi sko engum inn i bilinn a naestunni an thess ad vidkomandi vokvi fotabunad upp ur ilmandi hreinsilegi og thvoi harid upp ur keitu eda wash'n'go se thorf thar a. Eg get orugglega fengid lanada svona dollu (fotanuddstaekjastyle) eins og voru svo mikid notadar a timum kuaridunnar her um arid. Kanna a morgun (i dag?) hvort haegt verdi ad festa hana undir bilinn an mikils tilkostnadar eda erfidis.

Nr. 1 | posted by: Atviksorda-Anna | 16.07.2005 | 1:16:54 | [+] |

Oh ég skil þig svo vel (og þarf að ræða við mína menn varðandi þetta lyklaborðamál - will get back to you). Ég sver þess alltaf dýran eið að NÚ verði sko tekið á ungengninni í bílnum.. þegar ég er búin að þrífa hann.

Fattaði að ég byrjaði á vitlausum enda. Síðast lét ég börnin þrífa innvolsið. Næst læt ég þau bóna og eftir ár.. þá þarf ég aldrei að þrífa bílinn aftur!

Ég geri þetta að sjálfsögðu í nafni uppeldis. Ef þú vilt eiga bíl.. þarftu að kunna að þrífa hann líka! wink

Nr. 2 | posted by: anna | 16.07.2005 | 1:29:10 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web