Sunnudagur, 03. júlí 2005
Ég var að skila lyklum í gærkvöldi.. eða nótt öllu heldur. Var mér ekki óvænt boðið í mat. Lambalæri. Mikið rosalega er lambakjöt alltaf gott.
Kom sér vel, ég var glorhungruð.
Nema hvað.. ég sat í eldhúsinu hjá gestgjafa mínum til hálf sex í morgun að kjafta. Þar áður hafði ég setið við tölvuna að kjafta á msn við mann sem er að fara að kenna mér skriðsund á eftir. Verst að það lítur út fyrir að vera sól í dag og hann sagði mér að það væri lang best að synda skriðsund í rigningu. Svona er ég alltaf óheppin.
Ég vaknaði við símann minn í morgun, skil nú ekki hvernig ég fór að því.. var búin að sofa í einn og hálfan tíma. Hver vaknar klukkan átta á sunnudagsmorgnum?
Who indeed.
Lífið er stundum svo skemmtilegt. Fullt af óvæntum uppákomum.
Til dæmis var risastór hunangsfluga í herberginu mínu þegar ég vaknaði. Ég faldi mig undir sæng í tvo klukkutíma.. eða þangað til ég hætti að heyra suðið í henni. Ég veit að þær eru meinlausar.. en mér finnst þær samt skerí.