Miðvikudagur, 13. júlí 2005

Í dag fór ég heim í hádeginu, eins og ég geri oft.
Ég man ekki hvort ég er búin að segja frá því en Doddi er með áráttu, hann er aldrei í samstæðum sokkum. Ég hef reynt að kaupa sokka sem eru allir eins.. en þá grefur hann upp gamla sokka og notar þá frekar. -Ósamstæða.
Í dag spurði ég hann hvort hann væri í eins sokkum, áður en ég leit á fæturna á honum og svarið sem hann gaf mér var: "já, þeir eru næstumþví alveg eins". Ég leit á fæturna á barninu og spurði: "hvað er eins við þá?", "það er bolti á báðum", svaraði hann.
Ég tók saman tvær tölvumýs (sem fér finnst næstum því alveg eins), penna og bleikan varagloss og mynd af sokkunum. Stillti þessu upp fyrir framan tölvuna og spurði: "hvað af þessu er næstum því alveg eins?" Hann benti á tölvumýsnar.

Ég ætla ekki að útiloka að ég sé að bæla niður einhverja snilli í barninu.. en ég ætla samt að fara í gegnum föt barnanna, henda öllum sokkunum hans Dodda og kaupa nýja.. sem eru allir nákvæmlega eins. Það er alltaf að koma fyrir mig að ég er að droppa Dodda off í afmæli eða opinbera móttöku og þegar hann fer úr skónum blasa við ósamstæðir sokkar. Ég hef lúmskt gaman af þessu, ég viðurkenni það fúslega. Það eru hinir sem ég hef áhyggjur af.
Nú þegar ég er búin að skrifa þetta og setja inn myndir átta ég mig á því.. að tölvumýsnar eru ekkert næstum því alveg eins. Þær meira ólíkar en sokkarnir! Þær eru mismunandi á litinn, önnur er með merki framaná og hin með eitthvað fnugg í kringum skroll hnappinn!
Eini munurinn á sokkunum er hinsvegar liturinn. Hvort finnst ykkur sokkarnir eða mýsnar vera "næstum því" alveg eins???