Þriðjudagur, 26. júlí 2005
Ég trúi þessu ekki uppá þig! Mér leiðist! Mig vantar einhvern til að leika við!
Býður mér uppá hálmdýnu! Hvaða rugl er það?
--
Í gærkvöldi bauð ég Ingó í mat. Doddi tók eftir því að hann er með skegg eins og Obi Wan og næstum hár líka. Honum varð tíðrætt um þetta í morgun. Gaman að fá svona eðal menn í heimsókn og við spjölluðum saman á meðan Doddi horfði á Risaeðlurnar sem ég leyfði honum að taka á leigu.
Áður en karlmenn koma í heimsókn hingað er ég farin að hafa fyrir reglu að kalla á börnin mín og segja: "Krakkar. Það er að koma hingað maður. Ég hef ekki farið á stefnumót með honum, hann er ekki kærasti minn og við ætlum ekki að gifta okkur. Við erum bara vinir".
Einn daginn, þegar engin á von á því.. ætla ég að kalla: "Krakkar. Það er að koma hingað maður. Ég er búin að fara á nokkur stefnumót með honum, hann er kærastinn minn og við ætlum að gifta okkur."
og segja svo.. wahahahaha.. nei bara smá djók!