www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í skoðun
Mánudagur, 11. júlí 2005

Í dag lauk öðrum áfanga í átakinu "bíllinn í skoðun" sem ég hóf á laugardaginn þegar ég lét loksins verða að því að kaupa peru í framljósið á bílnum mínum. Í dag lét ég laga pústið og á miðvikudaginn.. þá mun renna upp stóra stundin. The moment of truth. Ég mun skipta um afturljós.

Gott ef ég verð ekki búin að láta skoða bílinn fyrir helgi! Ég er svo stolt af sjálfri mér. Góðir hlutir gerast hægt, sagði mamma og vá hvað hún hafði rétt fyrir sér.

Ég held að þetta afturljós sé búið að vera brotið á þriðja ár, pústið í hálft ár, framperan eitthvað aðeins lengur en hálft og það átti að skoða bílinn í júní í fyrra.

Þetta hefur ekkert með framtaksleysi að gera. Það er fjármagnsskortur sem fer svona með mig.

Sá skemmtilegi atburður átti sér hinsvegar stað á föstudaginn að ég fór að ná í póstinn minn, eitthvað sem ég nenni sjaldan að gera og þess vegna hlaðast ástarbréfin upp. Eitt ástarbréfið reyndist vera frá lögfræðingi - og ég opnaði það - aldrei þessu vant. Venjulega geri ég mér ferð niðrí vinnu til að setja þau í tætarann og fara með galdraþulu á meðan tætarinn étur þau í sig. Er reyndar langt síðan ég hef fengið bréf frá lögfræðingi en ég fæ samt alltaf kvíðahnút í magann og þurrk í munninn. Get ekkert að þessu gert.. þetta er óbeitaskilyrðing.

Ég er búin að skrifa þessum lögfræðingi bréf þar sem ég þakka honum fyrir að kynna mig fyrir alveg nýrri lífsreynslu: að vera glöð að fá bréf frá lögfræðingi.

Nýlega hrökk víst uppaf gamall fjarskyldur frændi minn sem var með rugluna en átti mökk af peningum og dreymdi um að giftast mér, af því hann sá mig þegar ég var fimmtán ára á einhverju ættarmóti útí rassgati í hermannajakka og klossum, reykjandi á bak við hlöðu. Hann dó fyrir stuttu, nítíu og átta ára að aldri. Ég er einkaerfingi auðæfa hans; hansahillur sem þekja 3 m af veggplássi, tvær tekk kommóður (vantar handfang á tvær skúffur á einni), nokkrir tugir milljóna og ástarbréf sem hann skrifaði, að því er virðist 1x á dag í 20 ár, áður en hann dó. Til mín.

Ég varð nú soldið abbó því í sumum bréfunum rennir hann hýru auga til jafnaldra frænku minnar en hún gifti sig í hittifyrra og datt strax úr leik. Ég var alveg á nippinu að lesa þetta á laugardagskvöldið, hann var nú varla skrifandi karlanginn en honum tókst að gera þennan hluta spennandi. Hafði lítil áhrif þegar ég gifti mig. Fann nokkur svona vælubréf þar sem hann afneitar mér gjörsamlega en hættir jafn snögglega við og segist fullviss um að ég endist ekkert í þessu hjónabandi og að hann hafi ekki trú á að nokkur maður á þessari jörð endist í sambúð með mér - nema hann.

Spes.

Nema hvað.. í dag var klárað að skrifa undir allt sem þurfti að skrifa undir svo nú er ég orðin rík og bölva húsnæðismarkaðnum vegna þess að ég er of nískt til að kaupa mér íbúð en fannst rétt að fá skoðun á bílinn. Ekki tími ég að borga allt erfðargóssið í sektir!


| anna | 23:05 |
comments

Sko.. þetta með pústið var orðið algjört möst mál vegna þess að ég var farin að þurfa að hækka tónlistina all verulega til að yfirgnæfa hávaðann og þetta fór að vera spurning um heyrnina í mér.. sem er tæp fyrir.

Framljósið lagaði ég bara til að minnka líkurnar á því að löggan stoppi mig random og fatti svo að ég átti að fá skoðun í fyrra. Ef allt fer að óskum kemst ég upp með þetta.. sem er reyndar ólíklegt. Ég kemst aldrei upp með neitt. Verð örugglega stoppuð og sektuð með bílinn á leiðinni í skoðun! hehehe

Nr. 1 | posted by: anna | 12.07.2005 | 22:01:31 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web