www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hvað ætlar þú að gera?
Sunnudagur, 17. júlí 2005

Í gær var mér boðið í yndislegan mat og á eftir horfðum við á Batman Begins saman, sem mér fannst mjög flott. Ég er Batman fan. Ég er líka orðin skjávarpa og heimabíófan. Vildi líka óska að ég kynni að elda svona eins og hann. Hann er soldið göldróttur.. held ég.

Á leiðinni heim hugsaði ég um að nú ætlaði ég að taka tvo tíma í brjáluð þrif, áður en ég færi að sofa. Hafði klárar barnaherbergið áður en ég þáði matarboðið en íbúðin var í rúst þó barnaherbergið væri spotless.

Þegar ég kom heim settist ég við tölvuna og ætlaði að fara inn á msn.. en varð litið á tölvupóstinn minn fyrst.. og sá að ég var búin að fá komment á síðuna mína, sem ég svaraði. Þá tók ég eftir að ég var með póst í inboxinu mínu.

Fyrst sat ég heillengi eins í hálfgerðu losti svo datt ég alveg út. Leið eins og ég væri ekki til lengur. Eins og tíminn væri hættur að líða. Ég var komin á stað sem ég þekkti og hélt að væri ekki til lengur. Margt hafði breyst en sumt var alveg eins og það var alltaf. Ég fann að hann hélt utanum mig og ég fann hjartað hans slá upp við hjartað mitt á meðan hann strauk blíðlega á mér upphandlegginn og hlustaði á mig segja honum hvað ég hafði fundið. Hann horfði í augun á mér og spurði "Anna, hvað ætlar þú að gera? og mig langaði svo að svara.. en áður en ég gat það fann ég hvernig tilfinningin fyrir honum dofnaði og ég var aftur orðin ein þegar ég hvíslaði með tárin í augunum "ég veit það ekki".

Þegar ég rankaði við mér las ég. Aftur og aftur og aftur og..

Ég fór auðvitað ekkert á stað þar sem tíminn hættir að líða í alvörunni. Ég sofnaði klukkan sex í morgun. Ekkert búin að þrífa.

-Og ég veit ekki ennþá hvað ég ætla að gera. Samt er ég búin að fara í bað.

Tvisvar.


| anna | 18:58 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web