www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Framtíðarplön
Fimmtudagur, 21. júlí 2005

Ég er búin að kvíða fyrir því að strauja vélina mína. Mér finnst það svo mikið mál og ég hata að þurfa að taka til í draslinu mínu á vélinni. Auk þess verð ég að strauja vélina hennar Jóhönnu líka og helst bæta við geymsluplássið á henni - ef vel á að vera.

Í dag fékk ég hinsvegar reinforcement sem ég hef trú á að eigi eftir að gera þetta bæði töluvert auðveldara og skemmtilegt, eitthvað sem ég hélt að þetta gæti ekki orðið.

Skyndilega er ég farin að hlakka til þessa og ég fullyrði að það hefur bara aldrei komið fyrir mig áður, að hlakka til að strauja, hvorki tölvur né flíkur. Ég á glatað straujárn og ennþá verra straubretti. Ég hef af þessum sökum systematískt komið mér upp fötum sem þarf ekki að strauja.

Ég get bara ekki ákveðið hvernig ég á að deila diskunum niður á vélarnar. Á Jóhönnu vél eru þrír diskar. Einn 600 MB, einn 3 GB og einn 13 GB. Á minni er einn 65 GB og einn 120 GB. Það er no point í að hafa þessa pínulitu diska í vélinni hennar Jóhönnu svo ég ætla að losa mig við þá og kaupa.. kannski 40 GB disk og setja í hennar vél. -Eða læt hana hafa 65 GB diskinn og kaupi einn 250 GB disk fyrir mig. Aðeins dýrara en myndi samt ekki gera mig gjaldþrota.

Maður hefur aldrei nóg af plássi, er það?

Þá þyrfti ég samt að hafa 120 GB diskinn sem kerfisdisk á minni því eftir ca 2 ár mun ég kaupa mér nýja vél og ég mun að sjálfsögðu taka 250 GB diskinn með yfir í hana, Jóhanna fær þá vélina sem ég vinn á núna og Doddi myndi fá vélina sem Jóhanna er með. Vá hvað Doddi verður glaður.

Það verður spes.. þegar ég sendi út í group msn: "krakkar! matur!"

Á endanum spái ég því að Jóhanna fari yfir í makka og fái sér laptop. Þá verður Doddi komin á Wolfenstein aldurinn.. og þessi vél höndlar það vel. Með smá breytingum. Þá verð ég komin með auka vél... sem ég get notað til að.. tjah.. maður veit ekki.

Og svo segir fólk að ég plani aldrei framtíðina.. iss!

Í dag er ég búin að vera að gera ráðstafanir og taka afrit af öllu heila draslinu á báðum vélunum. Nú er það búið

Ohhh.. svo er ég svo biluð.. fæ fiðring í magann að hugsa til þess að ég sé að fara að fá 250 GB af sjónvarpsefni... þó ég horfði nær aldrei á sjónvarp. Jú ég nefnilega dett inn í sjónvarpsgláp, þegar það er eitthvað sem mig langar til að horfa á. Og mér finnst betra að horfa á framhaldsþætti svona.. nokkra í einu í staðin fyrir einu sinni í viku.

Jú... ég læt Jóhönnu hafa 65 GB diskinn og fæ mér einn feitann á mína. Það er ekkert vit í öðru.

Ég verð samt ekkert smá ánægð þegar þetta er allt komið saman og ég get farið að vinna aftur á vél sem virkar!


| anna | 20:20 |
comments

Vá hvað ég skil þig... Og já, maður er enga stund að fylla þessa blessuðu diska svo að eina vitið er að Jóhanna fái þinn 65 og þú kaupir nýjan.

Nr. 1 | posted by: Edina Monsoon | 22.07.2005 | 12:10:10 | [+] |

Hérna, ert þú ekki með G5 í vinnunni? Er ekki skrítið að koma heim eftir vinnu og vera ekki með solleis græju?

Nr. 2 | posted by: ingólfur | 22.07.2005 | 12:15:04 | [+] |

Edina: Já ég er búin að finna rétta diskinn wink

Ingólfur: Ég er hætt að fara heim úr vinnunni...

Nr. 3 | posted by: anna | 22.07.2005 | 13:07:57 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web