Þegar ástin grípur.. einstæðu móðurina
Fimmtudagur, 21. júlí 2005
Ég er búin að vera að rippa alla diskana sem einu sinni tilheyrðu bæði mér og Tóta en verða nú flestir í eigu Tóta.
Ég er mjög dugleg, búin með 88 diska, en er þó ekki einu sinni hálfnuð. Ég hef ekkert að gera við geisladiskana, ég á ekki einu sinni spilara. Það eru samt nokkrir sem mig langar að halda og það er bara vegna þess að ég er tengd þeim tilfinningaböndum. Hina diskana sem ég fæ hefur Tóti hvort sem er engan áhuga á að eiga. Þegar ég spurði hann hvort ég ætti að go with my instinct með að ákvarða hvaða diska ég á að halda sagði hann já.
Hann veit að ég er með einstaklega háþróað instinct varðandi hvað hann nennir að hlusta á. Margra ára þjálfun og svo hjálpar líka hugsanalestrar námskeiðið sem ég fór á vegna vinnu minnar í fyrra.
Þetta er hinsvegar ekki það sem ég ætlaði að skrifa um. Ég hef komist að því að ég ber tilfinningar til forrits sem heitir i-tunes og ég held... að ég elski það. Verst að sálfræðingurinn minn er farin í frí því þetta getur varla talist eðlilegt.