Djö..
Mánudagur, 25. júlí 2005
Ég sit uppi með Gillette Sensor rakvélablöð sem ég keypti um daginn því ég var búin að gleyma að ég upgreidaði rakvélina mína í Mach3 og hún er of advanced fyrir sensor blöðin.
Hef aldrei skilið af hverju það eru seldar sér rakvélar fyrir konur. Ég kaupi það sem ég held að sé það besta í boði.. fyrir karlmenn. Af hverju? Ég reikna með því að það sé betra og svo gæti mér ekki verið meira sama um hvernig rakvélin er á litin, auk þess fékk ég enn eina staðfestinguna á því að heilinn á mér er karlkyns þegar ég tók próf á netinu í dag.
Miðað við kynhneygð.. er ég þá líklega hommi fastur í kvenlíkama.
En.. ég á sumsé Gillette Sensor rakvélablöð sem fást gefis. Ég get ekki skilað þeim því ég er orðin svo loðin á leggjunum að ég tætti umbúðirnar upp í brjálæðis-gleðis-geðshræringu og ég sé ekki alveg hvernig ég get skilað þeim í þessu rifrildi sem umbúðirnar eru orðnar eftir mig.
Á þessum tímamótum spyr ég mig: hvort ætti ég að bara go all the way og fara út í alvöru söfnun á fótunum með fastri fléttu og alles.. eða taka upp Mach3 blöðin sem ég keypti í dag og ráðast á frumskóginn?
Ef þetta er ekki tilefni til þess að fara í bað og hugsa málið, þá veit ég ekki hvað! Maður veður ekki útí svona ákvörðunartöku hugsunarlaust og ber að hafa til hliðsjónar þá staðreynd að mér varð ekkert kalt á fótunum í tjaldinu. Kannski er bara gott að safna fyrir veturinn.
Annars hef ég haft alveg rosalega mikinn frítíma síðan ég hætti að eiga kærasta. Ég nenni aldrei að plokka mig, aldrei að raka á mér fæturna - né nokkuð annað.. nema undir höndunum.. ég slepp ekki þar.. nema ég vilji lykta eins og ruslahaugur.
Það er önnur saga sem ég segi kannski einn daginn. Þegar ég er mjög drukkin eða búin að taka aðeins of mikið af "Fukitol"