Besta mamma í heimi cont.
Mánudagur, 18. júlí 2005
Nú hefur liðið smá tími síðan átakið "Besta mamma í heimi" klikkaði hjá mér þegar ég réðist, óvart, á son minn og reif úr honum tönn.. sem hefði alveg mátt vera lausari. Í gær fannst mér upplagt að reyna aftur við titilinn og ákvað að lesa fyrir Dodda áður en hann fór að sofa.
Bókin "Bróðir minn ljónshjarta" varð fyrir valinu.
Doddi ætlaði aldrei að sofna í gær.
Hann er hræddur við að deyja.