Bara á föstudegi..
Föstudagur, 15. júlí 2005
Viðskiptavinur: "góðann daginn. Geturðu sagt mér hvað hún heitir.. sú sem er í bókhaldinu hjá þér?"
Anna: "ja.. það er nú soldið flókið mál"
Viðskiptavinur: "nú?"
Anna: "hún er margir persónuleikar, vill vera kölluð Inga fyrir hádegi en Sigrún eftir hádegi"
Viðskiptavinur: "ha?"
Anna: "Já þetta er hluti af þróunarverkefni í samstarfi við klepp og mjólkursamsöluna"
Viðskiptavinur: "já er það?"
Anna: "nýsköpunarsjóður styrkir og verkefnið var verðlaunað af Iðnaðarráðuneytinu í fyrra, forsetinn kom og alles"
Viðskiptavinur: "Jahérna. Allt er nú til. Magnað! Má ég fá að tala við hana?"
Anna: "hún er bara í símanum akkúrat núna.."
Viðskiptavinur: "geturðu nokkuð beðið hana að hringja í mig?"
Anna: "nei því miður.. hún getur ekki lengur hringt út, ljóta ruglið sem það var, -löng saga, en bíddu... hún er að losna, gef þér samband.."