Föstudagur, 22. júlí 2005
Nú er átakið "Anna skoðar Ísland" að hefjast í samvinnu við Esso og Nóatún.
Ég var búin að steingleyma því hvernig þetta kom til, en auðvitað hófst þetta á msn, eins og svo margt annað. Ég var að spjalla við Soffa þegar hann komst að því að ég vissi ekki hvar á landinu Grundarfjörður er. Hann varð stórhneykslaður á þessu en ég fullvissaði hann um að þetta myndi allt breytast innan fárra ára því ég væri búin að ákveða að tjalda í a.m.k. einum af fjörðum landsins á hverju sumri þangað til ég væri búin að sjá þá alla.
Sagði að ég væri búin að ákveða að byrja í Hafnarfirði því þá væri stutt fyrir mig að keyra heim ef krakkarnir þyrftu á klósettið og svona.. því ég er löngu búin að gleyma því hvernig maður hagar sér þegar maður er í tjaldferðalagi, búin að vera heimahjá mér síðastliðin fjórtán ár.
Soffi sagði að þetta væri tómt rugl, miklu betra fyrir mig að koma í tjaldútilegu til sín á Grundarfjörð í verndað umhverfi.
Þannig æxlaðist það að ég er á leiðinni í tjaldútilegu með börnin mín. Það eina sem ég tek er tjald og svefnpokar. Ég þarf ekki nesti, ég þarf ekki gas.. því ef við gefumst upp.. röltum við bara inn úr garðinum hjá Soffa og fjölskyldu og sofum í gestaherbergjunum.
Svona á að fara að þessu!