Mánudagur, 25. júlí 2005
Held samt að ég sé nú rúmlega hálfnuð, vona það.
Ég var stödd í Bónus áðan, að versla í matinn. Velti fyrir mér, þar sem ég stóð í biðröðinni, hvort það væri farlama gamalmenni að afgreiða á kassanum.
Nei.. ekki var það farlama gamalmenni heldur pía með nýásettar gervineglur sem hreyfði sig eins og hún væri að leika í tónlistarmyndbandi sem er allt tekið í slómó og gerði allt sem hún gat til að passa neglurnar.
Eitt ljótasta fyrirbæri sem ég hef um ævina séð eru gel gervineglur. Hending að maður sjái vel heppnað sett á höndum kvenna og óþolandi ef þær hægja á biðröðum við kassa líka.
Bitringur hafði orð á því um daginn að einungis ljótt fólk verslaði í lágvöruverslunum og white trash hyski. Ég er ekkert átakanlega ljót, nema þá kannski þegar ég vakna grútmygluð á morgnanna - og þá er lokað í Bónus. Ég get hinsvegar verið lúði en finn enga sérstaka þörf fyrir að klæða mig sérstaklega upp í lúðagallann áður en ég fer að versla. Ekki er ég white trash hyski, þó sumum líði betur að kalla mig það. Það er einföld ástæða fyrir því að ég versla helstrið í matvöru og klósettpappír í Bónus. Ég vil borga eins lítið og ég kemst upp með fyrir vöru sem endar í eða á endaþarminum á mér.
Lái mér það hver sem vill.