www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Voff - eitthvað
Mánudagur, 13. júní 2005

Jæja.. þá er þáttur nr 2 kominn á teip. Ég breyti honum ekki meira úr þessu.

Slóðinn á sögumennina í ár er http://www.ruv.is/sogumenn

Frétti það líka að þættirnir eru endurfluttir í Víðsjá á fimmtudögum.

Annars er skrítið að vera komin aftur í vinnuna. Líður eins og ég hafi aldrei farið neitt.

Í gær fór ég í ræktina með vinkonu minni í fyrsta skipti frá því ég kom heim. Fannst ég óhugnarlega dugleg - sem ég var. Ekki skemmir fyrir að ég keypti mér ipod shuffle svo nú get ég haldið áfram í tónlistarlegri einangrun minni. Veit ekki alveg hversu sniðugt það er.. ég er smám saman að komast að því að líklega er ég frík þegar kemur að tónlist.

Á eftir bjó hún til salat og við horfðum á myndina Monster in law. Það er mynd fyrir konur. Aðalleikarinn í myndinni er með nef eins og the Toucan kid, eða hvað sem fyrirbærið heitir í comic strip dótinu.. fokk það er alveg stolið úr mér hvað syrpan heitir. wulf.. morgan.. haler.. shit. (síðan þetta var skrifað hef ég komist að því hvað syrpan heitir og hún heitir... wulffmorgenthaler. Vei þeim sem áfellast mig fyrir að muna þetta ekki!)

Allavega. Ég hló af mér rassgatið þegar ég tók eftir þessu, löngu á eftir vinkonu minni. Ég er ekki mjög skýr. Ég spái því að þessi maður fari í aðgerð áður en líður á mjög löngu. Verst að geta ekki birt samanburðarmyndir. Þetta er hillarious og gerir myndina vel þess virði að horfa á. Jennifer Lopez er farin að fara all ískyggilega í taugarnar á mér sem leikkona. Hún virðist lítið sem ekkert geta leikið. Jane Fonda er greinilega blönk, en hún lítur vel út - miðað við aldur.

Hvernig er það? Eru allir leikarar á sérsamningi eins og Dorian Grey?

Ó vá! Ég dey! Maðurinn heitir Michael Vartan! Og hann virðist meðvitaður um þennan skelfilega útlitsgalla.. engar prófílmyndir sem ég finn allavega..


| anna | 16:24 |
comments

Iss.. þetta er ekki nógu góð prófíl mynd. Best að horfa á hann alveg á hlið. Sést mjög vel í bílasenum cool

Nr. 1 | posted by: anna | 13.06.2005 | 21:58:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web