www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Uppgjörið
Sunnudagur, 19. júní 2005

Ég var að stytta þáttinn til klukkan sex í morgun. Ég missti mig smá... og skrifaði alllllt of langan texta.

Vaknaði í hádeginu. Líkamsrækt seinnipartinn og svo ætlaði ég að fara á Downfall klukkan 20 mín yfir fimm. Það sem ég er búin að reyna að sjá þessa mynd.. hætt að vera fyndið. Þegar ég kom niður í bíó var mér sagt að hún byrjaði klukkan þrjú á sunnudögum. Ég snöggreiddist alveg rosalega og rústaði miðasölunni.

Nei ég er að ljúga þessu. Ég fór bara smá að gráta.

Úr kvikmyndahúsinu lá leið mín á vídeóleigu. Og nei.. Downfall er ekki komin út. Ætlaði að taka Garden state.. en hún var ekki inni. Svo ég ákvað að fara á aðra vídeóleigu. Þar var ekkert inni heldur.. nema.. tatara! Alfie.

Ég fraus þegar ég sá andlit Jude glotta við mér þarna í hillunni. Áttaði mig á því að það er komin tími til að horfast í augu við það sem ég óttast mest.. og taka Alfie.

Ég þurfti ekki að borga fyrir myndina. Þær sögðu að þetta væir einhver bónus. Iss.. auðvitað þarf ég ekki að borga fyrir Jude Law mynd. Það væri nú ljóta ruglið! Hann væri ennþá í aukahlutverkum í amatörleikhúsum í Bournemouth ef ég hefði ekki uppgötvað hann og ef hann væri ekki dópari og aumingi væri hann miklu stærri stjarna en hann er núna. Ég var alltaf að segja honum þetta.

Blasir við.


| anna | 17:44 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web