Þriðjudagur, 14. júní 2005
Ég sit ein umkringd drasli. Nenni ekki að ganga frá eftir ferðina. Veit ekki af hverju. Þetta drasl fer ósegjanlega í taugarnar á mér. Kannski veit ég að þegar ég tek til verður eitthvað svo tómlegt. Kannski langar mig ekki að vera eins og Bree. Ég veit það ekki.
Fór í ræktina áðan með ipodinn minn. Djöfuls gargandi snilld er að hafa eigin tónlist þarna! Maður er miklu duglegri þegar maður er með réttu tónlistina, strange but true. Á leiðinni útí bíl hneig ég næstum því niður því ég var gjörsamlega örmagna. Reikul í spori með hárið útí allar áttir..
Hitti vinkonu mína áðan á Kaffibrennslunni. Hún sagði orðrétt: "Djöfull ertu brún. Djöfull hefurðu horast. Djöfull líturðu vel út píkan þín!" Svo tók hún utanum mig og sagðist hafa saknað mín. Mér þótti verulega vænt um það. Það er gott þegar einhver saknar manns. Ég var búin að sakna hennar líka. FOKKKKKKKK!!!!! ÉG GLEYMDI FROSKINUM!
Hún safnar nefnilega froskum. Hún segist hafa kysst svo marga að núna safni hún þeim. Ég keypti ferlega sætann frosk handa henni og einn handa mér. Minn froskur segir sjálfsagt margt um minn karakter því hann lítur hálf geðfatlaður út. Mér finnst hann æðislega sætur. Með svona eitthvað rugl/crazy look in his eyes.
Féll fyrir honum on sight og ég ætla aldrei að kyssa hann.
Jæja.. tími til kominn að bera á sig bodylotion. Sumir koma fagnandi frá útlöndum.
Ég kem flagnandi.