www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Not so much "kick ass".. eða hvað?
Mánudagur, 27. júní 2005

149_4976.jpg

Auðvitað fékk ég nostalgíukast og fór í geymsluna. Skipti meira að segja um peru svo nú er diskófílingurinn sem myndaðist þegar flúorperan blikkaði farinn.

Gekk nánast að jakkanum vísum í þessum kassa hérna - ekkert að marka mig frekar en fyrri daginn. Hélt að kassinn væri rauður. Anyway. Tel þetta líka nokkuð góða sönnun fyrir því að myndin er ófölsuð og hann hafi verið þekktur sem "kick ass jakki" í töluverðan tíma þar sem þetta er skrift fyrrverandi eiginmanns míns og annaðhvort hef ég lagt töluverða vinnu í að falsa þessar færslur.. og ég lofa ykkur.. hvorki ég né Tóti hefðum nennt því. Myndin sannar líka að jakkinn var geymdur með smókingnum. Viðkvæmar persónu upplýsingar sem ég hefði máð út ef ég væri með photoshop á vélinni.

Nú þegar ég er komin með jakkann í hendurnar og búin að máta hann.. ég bara dey. Mér finnst þetta svo fyndið.

jakkinn.jpgFann líka sleezbag slut kjól sem ég keypti mér einu sinni á útsölu. Nennti ekki að máta hann í búðinni. Leit út eins og rúllupylsa þegar ég fór í hann svo ég setti hann í geymsluna. Nú lít ég hinsvegar út eins og sleezbag slut þegar ég fer í hann.. svo hann fer aftur í geymsluna. Ég er að velta því fyrir mér af hverju ég keypti hann og hvort ég myndi kaupa hvað sem er ef það kostar þúsundkall og af hverju ég hendi honum ekki núna..

Auðvitað birti ég mynd af mér í jakkanum! Það er samt eitt að segja frá missíðum brjóstum, bólum og jafnvel inngrónum hárum í nára.. en að birta mynd af sér í þessu!

Gæti haft afleiðingar.

Svona var lífið 1987. Þetta þótti mér verulega móðins.


| anna | 23:06 |
comments

Verður þú á tónleikunum? Ef ógeðs geymslulyktin fer úr jakkanum í þvotti þá er ég alvarlega að hugsa um að vera í honum.

Í síðasta skiptið.

Nr. 1 | posted by: anna | 28.06.2005 | 0:26:17 | [+] |

iss sá nákvæmlega sama jakkann í spúútnik, kostaði sexþúsara..

nei lýg því en sá allavega nokkra ansi svipaða, það er hætt við að þú eigir nú ekki eftir að standa of mikið útúr wink

Nr. 2 | posted by: væla | 28.06.2005 | 0:27:05 | [+] |

Mér finnst hann bara flottur.

En ég var náttúrulega upp á mitt besta um 1987 og hef lítið þroskast síðan.

Nr. 3 | posted by: Helgi Briem | 28.06.2005 | 9:25:38 | [+] |

Veit nú ekki hvort ég var uppá mitt besta á þessum árum, en vá hvað er gaman að rifja þetta upp.

Nr. 4 | posted by: anna | 28.06.2005 | 9:50:15 | [+] |

Coolness cool

Nr. 5 | posted by: beggi dot com | 28.06.2005 | 20:17:34 | [+] |

varstu í sundi í kvöld - í steinapottinum?

Nr. 6 | posted by: Jóda | 28.06.2005 | 22:52:14 | [+] |

Nei, var ekki alveg viss og vildi ekki fara að ráðast á skvísuna ef hún héti kannski bara Sigríður eða eitthvað.

Nr. 7 | posted by: Jóda | 29.06.2005 | 16:15:54 | [+] |

hvada rugl jakki er nu thetta

Nr. 8 | posted by: ofeigur | 30.06.2005 | 20:22:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web