Sunnudagur, 12. júní 2005
Ég er búin að skrifa þátt nr 2. Á meðan ég var að skrifa er ég að þvo uppúr töskunum. Þvottavélin mín er að fara á kostum og ég laug.. ég er ennþá skít hrædd við þetta helvíti.
Ég náði hinsvegar töluverðum áfanga í fóbíulækningum þegar ég var að skrifa þáttinn um þvottavélina.. sjúklega hræðslu mína við Carmina Burana.
Ég ákvað að hafa það lag í þættinum. Var að skrifa á laugardagskvöldi áður en ég fór út - ein heima.. náði í lagið og sá að það var fimm mín að lengd. Vissi að ég yrði að stytta það til að það kæmist fyrir í þættinum.. svo ég náði mér í headphones.. setti þá í samband.. lækkaði verulega í græjunum.. hélt headfónunum eins langt í burtu frá mér og ég gat og smellti á "play".
Ég endist í ca 5 sek áður en ég slökkti, stökk upp.. kveikti öll ljós í íbúðinni og kíkti undir rúm. Horfði á þrjá frasier þætti áður en ég gat sofnað.
Næsta morgun var orðið bjart svo ég settist aftur niður og endurtók ferlið.. smellti á "play". Hlustaði á lagið í headphones sem ég hélt lengst í burtu frá mér.. og smám saman gerðist það að ég hækkaði... setti annan headphoninn á eyrað á mér.. svo báða.. og gat stytt lagið á endanum.
Nokkrum kvöldum síðar prófaði ég að hlusta aftur, ein heima.. seint um kvöld. Náði ekki einu sinni Oh fortuna áður en ég slökkti. Breytir því ekki.. að ég gat ekki einu sinni hlustað á þetta lag í dagsbirtu áður.
Djöfull hata ég helvítis þvottavélina mína.
En ég er búin með þátt nr 2. Þegar ég skrifa þessa þætti er ég yfirleitt með lag í lúppu þegar ég skrifa. Fer svo í zone og skrifa og skrifa og skrifa.. mismunandi hvaða lög ég hlusta á þegar ég skrifa. Dæmi:
Í fyrra..
1. þáttur. Hvers vegna varst'ekki kyrr - Mannakorn
2. þáttur. Rebel Yell - Billy Idol
Í ár.
1. þáttur. Filthy / Georgeous - Scissor sisters
2. þáttur. Let's get retarded - Black Eyed Peas
Af hverju geri ég þetta? Who the fuck knows...