Þriðjudagur, 14. júní 2005
Ég er snillingur. Það er engum blöðum um það að fletta. Literally.
Hver annar en ég fer útí búð til að kaupa klósettpappír.. kemur heim.. fer á klósettið.. og áttar sig á því að.. jú.. ég gleymdi ekki að kaupa klósettpappír.. en ég gleymdi honum frammi í eldhúsi.
Gagnast mér ekki mikið þar.
Vildi svo heppilega til að ég var búin að setja jólaservíetturnar frá því í fyrra inná bað - því það var ekki heldur til klósettpappír í morgun.. svo þetta reddaðist. Samt.. þessar servíettur smita rosalega lit. Kannski er ég með jólatré á rassinum.
Held ég fari í bað. Til öryggis.