Ég sakna þín endalaust plús endalaust og til tunglsins og til baka - milljón sinnum
Fimmtudagur, 16. júní 2005
Í hádeginu hitti ég börnin mín. Mér finnst pínu eins og ég sé í afplánun og í dag hafi verið heimsóknartími.
Það var æðislegt að sjá þau, ég sakna þeirra svo mikið. Þau voru algjörar dúllur og fullvissuðu mig um að þau söknuðu mín líka. Doddi á afmæli 22. júní og ég spurði pabba hans hvort ég fengi hann lánaðann til að halda afmæli. "Auðvitað máttu fá mig lánaðann mamma", svaraði Doddi hneykslaður. Pabbi hans leggur blessun sína yfir það líka.
Um helgina eru þau að fara í útilegu. Ég held bara að Doddi hafi aldrei prufað það áður! Nema þá kannski með mömmu.. Það verður svo gaman hjá þeim.
Ég velti því fyrir mér hvort ég á að fara í ræktina í kvöld.. ég er svo andlaus. Loftið hérna á skrifstofunni er eins dautt og hægt er að hafa það og ég er að sofna.
Kannski ég halli bakinu á stólnum, setji fæturna up borð og leggi mig í smá stund...