www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Crash
Fimmtudagur, 16. júní 2005

Ákvað að fara í bíó eftir vinnu. Datt fyrst í hug að fara á Downfall.. en varð hugsað til Dórsins og hætti við. Ekki það.. ég veit að ég fer ein á hana á morgun. Dórið hefur nóg með sig þessa dagana.

Auk þess var ég að vonast til þess að Crash myndi gera eitthvað fyrir mig og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er góð mynd.

Það sem ég tók ekki með í reikninginn er að það dettur engum heilvita manni í hug að fara í bíó þegar veðrið er svona gott. Íslendingar kaupa hamborgara á grillið, bjór og láta sér líða vel útí garði eða svölum. Ég var ein í bíó. Alein. Það hefur aldrei komið fyrir mig áður.

Ég veit ekki hvað öðrum finnst.. en mér finnst það rosalega einmanalegt .. og ég fór eiginlega í bíó til að sitja og horfa á mynd.. með einnhvað annað fólk í kringum mig. Fólk sem ég þyrfti ekki að tala við.. en það væri þarna. Af því bara.

Á meðan ég sat og horfði á sýnishorn úr væntanlegum myndum og þessi staðreynd.. að ég væri ein í salnum náði að sink in.. tók ég ákvörðun um að ég ætlaði þá að hafa þetta nákvæmlega eins og ég vildi, stóð upp og lokaði hurðunum í salinn. Þetta var töluverð þraut þar sem ég er í támjóum skóm og náði ekki nógu kröftugu átaki á takkann sem er þarna neðst við hurðina og sleppir haldinu á henni.. en ég gafst ekki upp og náði að loka þeim báðum.

Næst festi ég litlu borðin inn í sætunum í sætaröðinni sem ég sat í og brosti að sjálfri mér.. ég er svo mikið meyja.. get ekki að þessu gert. Skrítnir hlutir fara í taugarnar á mér. Svo settist ég aftur. Sá sýnishorn úr mynd sem er greinilegt að ég má ekki sjá. Held hún heiti "a lot like love".

Þegar myndin var búin, þurrkaði ég mestu tárin.. eins og maður gerir þegar maður er í bíó.. henti umbúðunum af poppinu og kókinu í ruslið og fór út.

Á bílastæðinu stóð bíllinn minn aleinn. Það þyrmdi yfir mig, fannst eins og ég væri Palli og ég væri ein í heiminum.

Þegar ég kom heim beið mín sending sem fékk mig til að brosa. Má segja að hún hafi bjargað kvöldinu. Ég ætla að skrifa í kvöld og hef ákveðið að loka mig af. Byrja að svara símanum aftur þegar ég er búin.


| anna | 21:07 |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web