Þriðjudagur, 14. júní 2005
Ég á vin sem elskar bíla og er þeirri gáfu gæddur að hann getur analæsað menn eftir því hvernig bíla þeir eiga. Hann kemst ótrúlega oft nálægt sannleikanum.
Bílarnir sem analæsaðir voru - eru Bens, Renault og Porsche. Eða svona sirka.. hann verður að hafa make and model líka, árgerð og svona.. vélastærð... and frankly.. I don't care about these things.. en hann gerði góða hluti við það sem ég gaf honum upp og niðurstaðan er í samræmi við þær skoðanir sem ég hafði myndað mér sjálf á eigendunum. Þar sem mig grunar að eigendur allavega tveggja bílanna lesi mig birti ég ekki stúdíuna í heild sinni.. en ég hafði gaman af því sem þetta bíla gúru sagði þegar ég spurði:
Anna says: en maður sem á engan bíl?
IO says: ef hann er próflaus... þá er hann eitthvað skrýtinn... í uppreisn, afdankaður hippi, kommúnisti eða þaðan af verra... hann gæti líka verið alkóhólisti - eða einfaldlega blankur
Anna says: en ef hann er none of the above
IO says: er hann próflaus?
Anna says: neibb
IO says: hmmmm
IO says: blankur?
Anna says: neibb
Anna says: en barnlaus og á hjól
IO says: fatlaður?
Anna says: neibb
IO says: andlega fatlaður?
Anna says: nei
Anna says: bíddu.. er það svona svakalegt taboo að eiga ekki bíl?
IO says: ertu viss um að hann sé þá ekki í það minnsta R lista maður?
Anna says: LOL
Það er sumsé þegar menn eiga enga bíla.. sem honum er ómögulegt að analæsa þá. Þá þarf ég að finna mann sem getur analæsað menn eftir því hvernig skútu þeir eiga... wahahaha