www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það styttist í Duran.
Mánudagur, 27. júní 2005

Að sjálfsögðu fer ég á Duran, en ekki hvað? Keypti meira að segja miða á A-svæði og við vinkonurnar ætlum í keppni um hvor okkar getur snert höndina á John Taylor.

As if.

En ég er samt á A-svæðinu. Önnur vinkona mín hringdi áðan til að taka stöðuna, spurði mig hvað ég væri eiginlega að gera þar, þeir væru allir orðnir krumpaðir og gamlir og miklu flottari úr fjarlægð. "Þá tekur maður bara niður gleraugun", svaraði ég og við fórum að skellihlæja. Iss.. iss piss! Nokkrar hrukkur hafa aldrei pirrað mig, hvorki á mér né öðrum. Verst að hrukkur virðast ekki nokkurt einasta garantí fyrir þroska hjá viðkomandi. -Aftur, hvorki hjá mér né öðrum.

Fór að hugsa um að mér finnst synd og skömm að ég eigi ekki eitthvað af þessum hörmulegu 80's fötum sem ég gekk í á sínum tíma til að sporta á tónleikunum. Þó mér finnist sumt af því sem er í verslunum í dag ekki síður hörmulegt. Ætla ekki að fara að eyða offjár í skrípagalla fyrir eitt kvöld.

Þá mundi ég það.. ég á gallajakka sem ég kallaði "kick-ass" á sínum tíma (16 ára) og hann var svo dýr að ég hef passað uppá helvítið alla mína búferlaflutninga, þó ég veigri mér við að fara í hann í hvert einasta sinn sem ég rekst á hann í einhverjum kassa þegar ég er að flytja. Jafnvel þegar ég bjó í íbúð sem var með svo lítilli geymslu að ég varð að henda nærri öllu geymsludótinu mínu.. ekki henti ég ljóta gallajakkanum.

Innst inni hef ég líklega vitað allan tímann að Duran myndi koma til landsins og akkúrat þessvegna henti ég ekki jakkanum, því við skulum átta okkur á því að hann er svo ljótur og 80's legur að ég get nánast hengt mig uppá það að hann komist aldrei beinlínis í tísku aftur. Það verða engin barnabörn sem missa vatn yfir þessari flík í skápnum hjá ömmu, no worries. Auðvitað ætti ég að grafa þennan viðbjóð út úr geymslunni því ef einhvertíma verður rétti tíminn til að sporta þessum hryllingi aftur.. þá er það n.k. fimmtudag. Ég þori að veðja að ég passi meira að segja í kvikindið!

Þá víkur sögunni að þessu eina þarna.. sem er óyfirstíganlegt. Sama hvað ég sé fyrir mér að ég yrði hreint út sagt æðisleg pæja í þessum jakka, nenni ég ekki niðrí geymslu til að finna hann.


| anna | 18:24 |
comments

Ekki bara verðurðu að finna jakkann, heldur verðurðu að setja inn mynd af þér í honum. Fyrir okkur miðaldra aðdáendurna. thumb up clown

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 27.06.2005 | 19:54:05 | [+] |

Já þið segið það...

Ég er með lykil af geymslunni. Þeir sem vilja geta sótt lyklana til mín og leitað. Það er eins og muni eftir að hafa séð hann í rauðum pappakassa, meira að segja nokkuð framarlega í geymslunni. Það var fyrir ári síðan.

Ef jakkinn finnst.. mun ég birta mynd, að sjálfsögðu.

Ef sódastrím tækið finnst, verð ég hissa og glöð.

Ef clariol nuddtækið finnst, þá ertu ekki í minni geymslu.. en ef þú finnur sódastrím tæki þar.. þá yrði ég hissa og glöð eftir sem áður.

Nr. 2 | posted by: anna | 27.06.2005 | 20:12:05 | [+] |

Mundu eftir vængjunum og bleiku vörunum.
Veifaðu Jóni fyrir mig.
Góða skemmtun

Nr. 3 | posted by: Linda | 28.06.2005 | 9:56:54 | [+] |

Takk Linda! Ég skal senda honum bleikann fingurkoss! wink

Nr. 4 | posted by: anna | 28.06.2005 | 9:59:07 | [+] |

Ég er búin að útvega mér grifflur og jakka sem ég get brett upp ermarnar. Að sjálfsögðu herðapúða og svo er það bara að rifja upp hvernig maður blés hárið í nógu stóra boga cool
Á maður að vera í snjóþvegnum reiðgallabuxum eða var það leggings og síðu glansbolur????
Ohhhh hvað ég hlakka til thumb up

Nr. 5 | posted by: frænkan | 28.06.2005 | 12:24:53 | [+] |

Dear lord! Áttu auka grifflur? Sko.. ég ætla í kúkabuxum með legghlífar og SVITABAND Á ENNINU, túberað hár útí allar áttir með black light strípum, blásanseraður gloss, augnmálning upp í hársrætur og hermannaklossar. Kem til með að MISSA MIG þegar ég set á mig kinnalit.

Ég held að einungis þannig geti ég náð gamla lookinu.

Minnir mig á Ásgeir sem ég hitti einu sinni á.. jesús.. hvað hét það? Kaffistofan? Smiðjuvegi. Opið allar nætur. Allavega, ég var stödd þar ca sautján ára og Ásgeir svífur á mig og segir: "vá.. ert þetta þú? Ég þekkti þig ekki, þú ert í svo.. venjulegum fötum, maður þorði nú aldrei að tala við þig hér áðurfyrr.. þú varst svo.. pönkaraleg".

Þarna beit ég hann í nefið og hann hefur ekki þorað að tala við mig aftur.

Nei hva.. þó maður ýki aðeins.

Nr. 6 | posted by: anna | 28.06.2005 | 12:54:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web