Á dauða mínum átti ég von..
Föstudagur, 24. júní 2005
Ég var sótt rétt eftir hálf átta. Við vorum sein og hann var ekkert að slaka á. Porsche fer mjög hratt. Ég sat í farþegasætinu og var viss um að kampavínsflaskan sem ég hélt á myndi líklega enda í hausnum á mér.. in a brutal way.. en hann hefur betra fjarlægðarskyn en ég. (scientific fact ladies)
Enduðum fyrir framan hús við rólega götu í góðu hverfi. Þar sem maður ímyndar sér að fólk setjist að með þrjú börn, fái sér hund.. au pair.. lifi góðu lífi. Ég var búin að spyrja hann hvert við værum að fara og það eina sem hann sagði var "it's just a date".
Ég var stressuð. Vopnaður maður við hliðina á mér. En svo fór ég að hugsa.. ég hef ekki gert neinum neitt. Hann ætlar ekkert að gera mér. Ég er nobody. Nema náttúrlega ef femínistarnir.. nei andskotinn, ég trúi því ekki! Við vorum komin upp að útidyrahurð á fallegu einbýlishúsi þegar ég fékk allt í einu sjokk og áttaði mig á því að.. kannski ætlaði hann ekki að gera mér neitt.. kannski ætlaði hann að gera hverjum sem var þarna inni eitthvað!
Hurðin opnaðist...
Mér finnst svo merkilegt hvað svona secret service agents er eðlilegt og skemmtilegt fólk. Þau eru par, vinna saman. Ef þau hefðu ekki farið að bera saman græjur (hnífa, byssur, talstöðvar, penna sem skýtur deyfiörvum) hefði ég haldið að ég væri í svona venjulegu matarboði! Fengum æðislega góðann mat. Ég á aldrei eftir að þora að elda aftur fyrir hann. Verð eiginlega að ná í slökkvitækið á ganginum og keyra það í gegnum ofnhurðina. Segja að það hafi orðið slys.. og ég hafi ekki ennþá lært á eldavélina. Ég finn eitthvað. Sátum og kjöftuðum í allt kvöld og ég skemmti mér rosalega vel. Þar sem ég drekk ekki vín rétti hann mér bíllykilinn þegar við vorum búin að kveðja. Áður en hann sleppti takinu af lyklinum spurði hann: "you haven't been drinkin, have you?" Ég svaraði: "no". (Iss.. hann vissi það alveg). "Are you sure?", spurði hann. "Would I lie to you darling", svaraði ég. "Well...", hann glotti, "we have established you are a liar.. I just don't know if you have lied to me yet".
Touche!
Við eigum eftir að eiga dásamlegt samband byggt á solid vantrausti á hvoru öðru. Ég sé ekki af hverju það ætti ekki að ganga eins og í sögu. Við eigum það sameiginlegt að vera bjartsýn, frestum hlutum sem við nennum ekki að díla við.. og við erum bæði.. a bit looney.
Fólk sem þekkir mig veit að ég kann að meta kraftmikla bíla. Þetta er ekki metaphor. Ég viðurkenni fúslega að ég átti ekki von á því að ég myndi nokkurtíma prufa svona græju, sem þessi bíll vissulega er. Það gerist bara í bíómyndum. Eða á bloggsíðum.
Breski maðurinn hafði verið að senda sms á fullu á meðan ég var að keyra. Skyndilega fékk hann sms til baka. Þegar hann hafði lesið það gerði hann mér tilboð sem ég er ekki viss um að ég geti hafnað.
Hann útskýrði fyrir mér að hann væri búin að leita sér að partner - lengi. Hefur ekki fundið neitt sem hentar. Umsækjendurnir hafa verið of ungir, hafa ekki næga reynslu, eins og gengur. Hann vantar natural, konu með reynslu.
Konu sem kann að hagræða sannleikanum og getur talað sig út úr hvaða aðstæðum sem er. Konu sem getur átt herbergi á meðan hann er að murka lífið úr einhverjum, á mannúðlegan hátt, in the back. Konu sem getur gengið á literally lethally háum hælum, og er ekki hrædd við að nota þá, in a sinister way. Konu sem hefur neglur sem geta klórað augun úr fólki - ef þarf. Konu sem skilur að kvenleiki er eitthvað sem hægt er að misnota.. og er ófeimin við að gera það. Konu sem hefur enga samvisku, enga sál, no ethics, no morals. Konu sem er fit. Konu sem hefur húmor og touch of cool. Konu sem kann sig - allstaðar - og veit hvenær hún á ekki að kunna sig.
Hér þagnaði hann.
Ég spurði strax hvort hún mætti hafa frjálslegan hárvöxt á efrivörinni og þegar svarið var já.. come on! Ekki spurning! Þetta djobb er fyrir mig! Ég er.. allt þetta og svo miklu, miklu meira! Ég er svo glöð að einhver sá loksins alla möguleikana sem leynast í mér!
Ég fæ samt ekki svona bíl fyrr en ég er búin að vera on the job í minnst fimm ár og ég fæ bara licence to maim til að byrja með. Motherf#%!&$!!