www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
180°
Sunnudagur, 26. júní 2005

Í gær, á skotæfingarsvæði lögreglunnar, með walther ppk í höndunum og heyrnahlífar á hausnum.. að miða á sílúettu af manni á plaggati nokkrum metrum fyrir framan mig.. áttaði ég mig skyndilega á því hvað er búið að vera að plaga mig.

Þegar ég var búin að tæma magasínið í plaggatið rétti ég eigandanum byssuna sína og sagði honum að mig langaði ekki að gera þetta lengur og ég þyrfti að fara heim. (Fyrirgefðu ef ég var dónaleg.)

Þegar ég kom heim fór ég í bað og hugsaði málið betur.

Fyrir nokkrum mánuðum síðan var ég spurð: "hvað vilt þú?". Ég var að panta mér mat á veitingastað.. en eins leikin og ég er í að oftúlka það sem fólk segir við mig.. fór ég að hugsa um hvað ég vil.. í stærra samhengi. Hvað vil ég í lífinu? Og ég vissi það ekki. Man ekki hvað ég pantaði, en ég get lofað ykkur.. það var ekki það sem mig langaði í. Ég veit ekki af hverju ég geri það. Panta mér alltaf eitthvað sem mig langar ekki í. Líklega geri ég það vegna þess að ég hef óheyrilega dýran smekk og þegar mér er boðið vil ég ekki panta eitthvað sem er mjög dýrt. Þó ég viti vel að viðkomandi hefur efni á því.

Ég panta mér bara það sem mig langar í þegar ég borga. Af hverju er það? Getur verið að ég skammist mín fyrir að hafa dýran smekk? Af hverju er það?

Ég hef líklega verið ca átján ára þegar ég var einusinni sem oftar að keyra besta vin minn í vinnuna. Hann vann á bensínstöð og á leiðinni fórum við að tala um hvað okkur langaði að gera í framtíðinni. Mig langaði svo margt og hann sagði mér að það væri bara eitt fyrir hann að gera: skrifa. Honum fannst það fúlt því hann var ekki viss um að hann langaði til að gera það. Ég sagði honum að ég öfundaði hann og ég öfundaði hann ennþá. Ég vildi óska þess að ég hefði haft eitthvað eitt sem ég væri eins góð í og hann. Ég er ekki þannig. Ég get gert margt. Finn bara aldrei þetta eina sem ég er mjög góð í að gera. That sucks.

Mjög seint í gær komst ég að því hvað ég vil. Ég gerðist svo djörf að segja vinkonu minni frá því og ólíkt því sem ég átti von á.. - að hún myndi hlæja og spyrja hvort ég væri búin að vera að drekka - sagði hún: "go for it girl, þú getur það vel!".

Það fyrsta sem ég þarf að gera - til að geta gert það sem ég vil gera - er að klára verkefnið sem ég er að vinna núna. Þegar ég er búin að fá borgað fyrir það get ég keypt mér harðan disk í tölvuna. Þá get ég straujað hana og sett photoshop aftur upp.

Og þá verð ég komin með verkfærið sem ég þarf til að hrinda fyrsta áfanga þessarar áætlun í framkvæmd.

Að sjálfsögðu er draumurinn minn far out eins og flestar hugmyndir mínar og líklega verður hann aldrei að veruleika.. en so what? Það vita allir að þeir sem lifa drauminn sinn verða oftast fyrir vonbrigðum hvort sem er.


| anna | 18:36 |
comments

wink leiðin að markinu er aldrei án hindrana en auðvitað geturu þetta thumb up Go for it smile

Nr. 1 | posted by: Lilja Margrét | 27.06.2005 | 13:14:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web