17. júní
Laugardagur, 18. júní 2005
Ég var rassskellt niðrí bæ í kvöld. Rasskellt. Af unglingsstrák. Hann gekk á móti mér og þegar hann fór framhjá rassskellti hann mig og hljóp í burtu. I did not see this coming. Djöfull brá mér. Sló mig alveg útaf laginu og ég fann fyrir höndinni á honum á rassinum á mér í klukkutíma á eftir.
Á leiðinni heim reyndi annar strákur, sem gekk á móti mér, að káfa á bjóstunum á mér. I did see that one coming enda leyndi sér ekki hvað hann var að hugsa.. eins fullur og ógeðslegur hann var. Ég hef séð þetta look í augum nógu margra karlmanna til að vita hvað gerist næst. Ég barði í handlegginn á honum áður en hann náði að snerta mig og svo hrökklaðist hann í burtu. Fáviti.
Ég meinaða. Tveir fávitar á einu kvöldi sem vilja up close and personal samband á eigin forsendum. Vá hvað sumir karlmenn eru miklir fávitar og vá hvað þeir verða það ungir!! Það er ekki eins og ég hafi verið í flegnum kjól eða neinu skuggalega ögrandi; gallabuxum, gallajakka og bol. Er kraftgalli málið ef maður vill vera látinn í friði? Eftirá er ég hissa á hvernig ég brást við og að ég hafi barið seinni fávitann frá mér. Líklega mat ég stöðuna þannig að hann ætti ekki séns, sá í Kristó á Rex og vissi að dyraverðirnir myndu ganga frá þessu kvikindi ef hann hefði ráðist á mig af viti. Ég kom sjálfri mér samt á óvart því hann var ekki einn. Hann var með tveimur vinum sínum og fólk hefur verið barið í plokkfisk af minna tilefni niðrí bæ.
Fórum á Oliver. Vinkona mín var að hætta í sambandi og hefur oft verið hressari. Ég var með hugann allt annarstaðar en við að skemmta mér.
Ég drakk kók og vatn til skiptis. Mætti halda að ég væri fokking AA manneskja orðin en ég var bara ekki í stuði fyrir eitthvað djamm. Og ég er pissed off. Rassskellt og reynt að káfa á mér útá götu á einu fokking kvöldi. Ég var ódrukkin að ganga þegjandi eftir gangstétt í bæði skiptin. Ég gerði ekkert til að ögra hvorugum þeirra.
Hvað er að fólki????