www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tússpennasniff í súrefnisskorti
Mánudagur, 09. maí 2005

Ég held að ég sé loksins búin að læra að sniffa tússpenna. Kom hingað maður og bað mig um að gera auglýsingar með sér, sem ég gerði. Á meðan við tússuðum gaus upp mikil tússpennalykt og skyndilega fór okkur að líða geypilega vel. Auglýsingarnar urðu meira og meira "to the point" nema ég velti því fyrir mér hvort við ættum nokkuð að hengja upp þessa sem á stendur: "MÆTIÐ AUMINGJAR" Okkur fannst þetta hitta alveg í mark en síðan þá er liðinn hálftími og ég er búin að opna glugga.

Áttaði mig á því að við gleymdum alveg að segja hvert ætti að mæta og hvenær.

Ætli maður verði timbraður af þessu?

Ég verð sumsé upptekin við að skemmta mér n.k. föstudag. Það óhugnarlegasta af öllu er að einhverra hluta vegna er ég auglýst sem skemmtiatriði á einu plaggatinu. Man ekki af hverju og mér er of illt í hausnum núna til að spyrja.


| anna | 15:42 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web