Þriðjudagur, 10. maí 2005
Eins og glöggir lesendur vita er ég gallsteinablöðrulaus kona og hef verið í all mörg ár. Þetta hefur ekki háð mér neitt, nema ég forðast snakk og allskonar sósur eins og hamborgarasósur og kokteilsósur. Fái ég mér svoleiðis í miklum mæli verður mér alveg svakalega illt.
Ég var búin að sjúkdómsgreina bestu vinkonu mína og segi að hún sé með þetta líka. Yrði illa svikin ef ég hef rangt fyrir mér og var búin að benda henni á að láta skoða sig fyrir þónokkru síðan. Hún lét ekki segjast, enda mikið hörkutól. Hún segir að þetta sé versti verkur sem hún hefur á ævinni upplifað, sem rennir stoðum undir kenningu mína.
í fyrradag fékk ég skerandi verk í eitthvað innyfli í mér og aftur áðan þegar ég labbaði upp stigann heima. Þetta er verkur hægramegin við hrygginn aðeins fyrir ofan kviðinn og það sem skiptir mestu máli er að hann er svakalega sár. Væri nú ekki klassískt ef ég væri komin með nýrnasteina og fengi kast í Króatíu? Ég er greinilega gjörn á að safna steinum sbr. gallið.
Vona að þetta sé hluttekningarverkur en ekki eitthvað annað.
Dettur mér í hug... kannski er ég að fara að fæða! Var ófrísk og vissi ekki af því, var það ekki í tísku um daginn?