www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Allt er nú hægt að misskilja
Mánudagur, 02. maí 2005

Það kom maður í vinnuna til mín í dag. Þessi maður er svona lækna eitthvað, rosa klár strákur. Hann fékk sér sæti og talaði við mig smá og svo rak hann augun í vaselínið sem ég geymi á skrifborðinu mínu, sem ég nota sem varasalva á heitum og þurrum dögum hér í sahara, þar sem skrifstofur fyrirtækisins eru staðsettar.

Við hliðiná vaselín krukkunni hef ég geymt tómt lyfjaglas núna í nokkrar vikur. Í því voru sýklalyf sem læknirinn minn lét mig fá gegn þrálátum bólum í fési. Fyrrnefndur maður tók upp vaselínið með hægri og lyfjaglasið með vinstri og las heiti lyfsins. Hann horfði til skiptis á vaselínið og lyfjaglasið og svo horfði hann á mig og fór að skellihlæja.

Ég er búin að vera þreytt og pirruð í dag og generally illa fyrir kölluð svo ég hvæsti á hann: "hvað?" Þegar hann var búin að jafna sig spurði hann mig hvort ég gerði mér grein fyrir því að þetta sýklalyf.. sem ég geymi við hliðiná vaselíninu.. á skrifborðinu mínu.. er eitt af því algengasta sem gefið er við hinum ýmsu kynsjúkdómum.

Eh.. nei.. ég get ekki sagt að mér hafi verið kunnugt um það, enda er ég búin að henda lyfjaglasinu og vaselínið er komið ofaní skúffu. Nú þarf engin að vita af þessu.

Ljótu perrarnir þessir læknar alltaf.


| anna | 18:07 |
comments

laughing

Nr. 1 | posted by: Jóda | 3.05.2005 | 9:05:08 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web