www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það er ljóst..
Sunnudagur, 08. maí 2005

Ég er meira aðlaðandi í augum gagnstæða kynsins án gleraugna.

Ég fór út í gær án þeirra. Ég er nefnilega búin að tala svo mikið við Hörpu í síma undanfarið að mér var illt í brjóskinu í hægra eyranu og það var vont að vera með gleraugun. Þetta er náttúrlega bilun.

Nema að þetta hafi verið augabrúnirnar, þær voru náttúrlega nýplokkaðar...

Á leiðinni heim fékk ég t.d. bónorð frá leigubílstjóranum. Ég sagði nei.

Hann var að hneykslast á mér fyrir að vera að fara heim og klukkan ekki orðin þrjú.. varð svona imponeraður þegar ég sagði honum að ég væri að fara heim að horfa á Sledge Hammer. Vá.. ef ég ætti 50' plasmasjónvarp myndi ég þurfa að styrkja útidyrahurðina all verulega. Þegar ég sagði honum að ég ætti pínulítið sjónvarp - til að minnka áhugann hjá manninum - fannst honum það mikill kostur. Spurði hvort það væru hjól á sjónvarpsskápnum og þegar ég sagði "já" fór hann að plana hvernig hægt væri að rúlla sjónvarpinu inní eldhús og horfa á Sledge Hammer yfir matnum og svo gætum við rúllað sjónvarpinu inní svefnherbergi líka..

Ég beið eftir að hann myndi draga upp kaupmála í þríriti.

Þegar ég borgaði honum með debetkortinu sem inniheldur ljótu myndina af mér, sakaði hann mig um að vera með falsað kort. Ekki út af myndinni.. nei. Út af kennitölunni. Hann trúði því ekki að ég væri komin yfir þrítugt. Varð heví alvarlegur og fjandsamlegur og talaði um lögreglu og eitthvað rugl. Ég náði að tala hann ofanaf því. Útskýrði fyrir honum að þetta væri ekkert að marka. Ég missti alveg af öllu sólarljósi í heil fimmtán ár, þegar ég svaf á daginn og vakti á nóttunni, svo það er vel skiljanlegt að ég sé ekki hrukkóttari en raun ber vitni. Ég var líka þeirra gæfu aðnjótandi að mér leiðist alveg skelfilega mikið að liggja í ljósabekkjum. Spáiði í því.. ef ég lít út fyrir að vera yngri en ég er.. er það í raun bilaðri lífsklukku og leti að þakka. Rosalega margar stelpur á mínum aldri sem duttu inn í tanorexíu dæmið og láu í ljósabekkjum í öllum frístundum, með skelfilegum afleiðingum.

Sem betur fer tók hann mig trúanlega. Ég vann hann endanlega á mitt band þegar ég horfði graf alvarleg í augun á honum og sagði, án þess að blikka: "trust me.. I know what I'm doing". Hann fór allavega að hlæja, horfði á mig í smá stund, hristi hausinn.. og renndi kortinu í gegnum vélina.

Þetta meikar samt ekki sense. Það er hægt að kaupa Sledge Hammer á amazon, eins og ég benti manninum á. Kostar minna OG þá sleppur hann við að búa með mér.

Annnars auglýsti ég hálft rúm til leigu með aðgang að skúffu í gær í partíinu og ég er ekki frá því að einn fyrrverandi bekkjarfélagi minn komi til með að banka uppá hjá mér í sumar þegar hann neyðist til að flytja út þegar húsnæðið sem hann er í verður tekið í gegn. Hann spurði hvað þetta myndi kosta og ég sagði "35 þúsund á mánuði". Þá spurði hann hvaða rúm ég væri að tala um. "Rúmið mitt", svaraði ég. "Sefur þú í því?", spurði hann. "Já, auðvitað", svaraði ég. Þá spurði hann hvort einhver önnur þjónusta væri í boði og ég svaraði: "já, en það kostar auka".

Ég veit sko alveg hvað hann er að hugsa.. og GLÆTAN að ég nenni að strauja skyrturnar hans, pressa buxurnar, elda fyrir hann og lesa fyrir hann áður en hann fer að sofa... No fokking way.

Það kostar auka.

Well.. það er jeppi hérna sem ég þarf að koma til eiganda síns. Það gilda því miður ekki sömu reglur yfir bíla sem eru skildir eftir í partíum og áfengi. Ég má ekki eig'ann...


| anna | 11:54 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web