www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Vinir Dóra
Mánudagur, 11. apríl 2005

Skondið, Halldóri var ekki ljóst að ég ætti vinkonur. Hann hefur heyrt mig tala um vinkonur mínar en hann hafði aldrei séð neina þeirra fyrr en hann hitti mig og Jude á Eddie Izzard um daginn og ég var að tala við Unu vinkonu. Reyndar vippaði hann sér að henni og spurði hvað ég væri að borga henni fyrir að tala við mig en það er önnur saga. Ég veit alveg að Halldór á vini, en ég gerði mér hinsvegar ekki grein fyrir því að hann ætti svona frambærilega vini.

Á föstudagskvöldið var ég í heimsókn hjá Dórinu þegar maður sem ber nafnið Jón kom í heimsókn. Halldór er flensaður. Eitt skiptið á meðan hann beið eftir hnerra spurði ég Jón hvort hann væri fiskur og átti þá við stjörnumerkið. "Nei, en læknamistökin líta út eins og sporður", sagði hann og lét eins og hann ætlaði að sýna mér bakið á sér og brosti. Ég kann að meta menn með húmor. Þegar Jón var farin skammaði Halldór mig fyrir að þykjast vera fórnarlamb endalaust. Sagði að ég væri miklu meira together en ég gæfi mér kredit fyrir og ég ætti að hætta að vorkenna mér, finna það sem mig langar í og taka það, svo gaf hann mér símanúmer.

Í gær var ég á leiðinni út í bíó þegar síminn minn hringdi og birti númerið sem Halldór hafði gefið mér: "Sæl Anna, Jón heiti ég. Mér skilst að þú hafir þann leiða ávana að fara ein í bíó á sunnudagskvöldum og þar sem úrvalið af hryllingsmyndum er einstaklega gott um þessar mundir datt mér í hug hvort þig langaði að koma með mér á eina slíka, því þegar ég sá þig á föstudaginn helltis yfir mig yfirnáttúruleg þörf fyrir að hræða úr þér líftóruna svo þú gætir ekki án mín verið - lengi." Ég var löngu farin að hlæja svo hann hélt áfram: "eða gamanmynd þó útkoman yrði líklega aðeins önnur, ég sleppi því bara að raka mig.. það er ögn skerí".

Ég var hinsvegar að fara með Hjördísi í bíó í gær. Við fórum að sjá Spanglish og á eftir kíktum við á kaffihús og spjölluðum fram á lokun. Spanglish er ágæt, ég hafði mest gaman af ömmunni.


| anna | 11:33 |
comments

... og hafið líklega verið í náttfötunum líka þá ekki satt?...
pffft... maður trúir nú ekki hverju sem er!

Nr. 1 | posted by: Langi Sleði | 11.04.2005 | 12:48:35 | [+] |

DOH!

Nr. 2 | posted by: anna | 11.04.2005 | 13:23:26 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web